Umhyggja, gleði og kraftur

Messa og bangsasunnudagaskóli 6. mars kl. 11

Sunnudagurinn 6. mars er fyrsti sunnudagur í föstu. Þá kl. 11 er messa í höndum sr. Erlu, Arnórs organista og félaga úr Kór Keflavíkurkirkju. Hjónin Stefán og Guðrún eru messuþjónar. Sunnudagaskólinn byrjar í kirkjuskipinu og heldur svo í Kirkjulund. Marín, Helga og Ingi Þór bjóða uppá bæn, biblíusögu og söng. Öll börn hvött til að [...]

By |2022-03-05T15:10:38+00:005. mars 2022 | 15:10|

Fjölskyldumessa 6. febrúar kl. 11

Með gleði bjóðum við til fjölskyldumessu sunnudaginn 6. febrúar kl. 11 í Keflavíkurkirkju. Grybos leikur á gítar, Helga og Marín leiða bæn og söng og sagan af Jóhannesi skírara verður sögð. Sr. Erla þjónar. Mikið hlökkum við til að sjá ykkur á ný.

By |2022-02-02T20:49:02+00:002. febrúar 2022 | 20:49|

Annar sunnudagur í aðventu

Aðventustund og sunnudagaskóli 5. desember kl. 11 Er við kveikjum á Betlehemskertinu á öðrum sunnudegi í aðventu bjóðum við upp á lágstemmda stund í Keflavíkurkirkju. Arnór organisti leikur undir söng kórfélaga og sr. Erla leiðir stundina. Sunnudagaskólaleiðtogar leiða stund í Kirkjulundi á sama tíma. Megi aðventan snerta við og styrkja trú okkar.

By |2021-11-30T10:15:09+00:0030. nóvember 2021 | 10:15|

Sunnudagurinn 21. nóvember

Sunnudagurinn 21. nóvember kl. 11. Stöðfirðingurinn Sólmundur Friðriksson leikur og syngur við morgunmessu. Sr. Erla þjónar. Helga Bjarnadóttir er messuþjónn dagsins. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í Kirkjulundi. ALexander, Helga og Marín bjóða uppá samveru með söng, bæn, biblíusögu og brúðum. Minnum á grímuskyldu og að gætum að sóttvörnum.  

By |2021-11-17T11:02:45+00:0017. nóvember 2021 | 11:02|

Allra heilagra messu aflýst

Kæra samfélag Keflavíkurkirkja og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hafa í sameiginingu tekið ákvörðun um, í ljósi aukinna og fjölda smita, að aflýsa Allra heilagra messu nk. sunnudagskvöld kl. 20. Þessi messa er áralangt samstarf Keflavíkurkirkju og HSS og hefur ávallt verið fjölmenn stund. Þykir okkur leitt að þurfa að aflýsa í ár en biðjum ykkur um aðstoð [...]

By |2021-11-07T15:37:13+00:007. nóvember 2021 | 15:37|

Tvær messur 7. nóvember kl. 11 og 20

Sunnudaginn 7. nóvember kl. 11 bjóðum við til fjölskyldumessu fyrir allan aldur sem vill koma og gleðjast í kirkjunni. Regnboðaraddir syngja undir stjórn Freydísar Kneifar, Helga og Alexander leiða stundina ásamt sr. Erlu. Sunnudagskvöldið 7. nóvember kl. 20 bjóða Keflavíkurkirkja og starfsfólk á Heilbriðgisstofnun Suðurnesja bjóða til allra heilarga messu. Starfsfólk HSS les upp nöfn [...]

By |2021-11-04T11:06:23+00:004. nóvember 2021 | 11:05|

Fermingarbörn ganga í hús 3. nóv kl. 17:30

Kæri Keflavíkursöfnuður Fermingarbörn Keflavíkurkirkju munu ganga í hús í söfnuðinum 3. nóv. frá kl. 17:30 og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Þetta er árleg söfnun fermingarbarna um allt land fyrir vatnsbrunnum í Eþíópíu og Úganda. Við hvetjum íbúa í Keflavíkursókn til að taka vel á móti fermingarbörnunum sem ávallt hafa staðið sig með vel og [...]

By |2021-11-01T19:23:10+00:001. nóvember 2021 | 19:15|

Sunnudagaskóli og messa 24. okt. kl. 11

Sunnudagurinn 24. október kl. 11 er messa í höndum sr. Erlu. Kórfélagar syngja við undrleik Arnórs organista. Halldóra Steina og Helgi Valdimar eru messuþjónar. Á sama tíma er sunnudagaskóli í umsjón Marínar, Alexanders og Helgu.

By |2021-10-19T09:45:40+00:0019. október 2021 | 09:21|

Hefðbundinn sunnudagur í Keflavíkurkirkju, 10. okt. kl. 11

Gleðilegt er að boða til hefðbundinnar messu sunnudaginn 10. október kl. 11. Kórfélagar syngja við undirleik Arnórs organista. Helga Bjarnardóttir er messuþjónn og sr. Erla þjónar. Sunnudagaskólabörn ganga inn í Kirkjulund eftir upphaf messunnar. Marín Hrund, Alexander og Helga leiða barnastarfið . Verið öll velkomin

By |2021-10-05T09:44:11+00:005. október 2021 | 09:44|

Hátíðarguðsþjónusta og vígsla orgels 3. október kl. 14

Sunnudaginn 3. október kl 14 er hátíðarguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju. Þá verður orgeli formlega vígt af prestum kirkjunnar og prófasti Kjalarnessprófastdæmis. Kór Keflavíkurkirkju syngur og organistinn leikur af sinni færni á fallega hljóðfærið. Að lokinni stundu verður boðið uppá kaffi og veitingar. Verið öll velkomin að koma og taka þátt í gleðistund með okkur.    

By |2021-09-27T14:11:16+00:0027. september 2021 | 14:11|
Go to Top