keflavikurkirkja_vigsla_011212

Við helgihald í Keflavíkurkirkju mætast fornir helgisiðir kirkjunnar og nýsköpun sem hæfir samtímanum.

Boðið er upp á fjölbreytta guðsþjónustu í bland við hina sígildu messu.

Sunnudagsguðsþjónusta. Ungir sem aldnir koma saman í kirkjunni kl. 11:00 eða kl. 20:00 á sunnudögum þegar hringt er til guðsþjónustu.

Æðruleysismessur. Æðruleysismessur eru haldnar fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði kl.20.00 yfir vetrartímann. Æðruleysismessur eru miðaðar að þeim sem stunda einhverskonar 12 spora vinnu.

Hátíðarguðsþjónusta. Hátíðarguðsþjónusta fer eðli málsins samkvæmt fram á helstu hátíðum kirkjuársins, jólum og páskum, þegar mikið stendur til í kirkjunni.

Kyrrðarstundir. Á miðvikudögum eru kyrrðarstundir í Kapellu vonarinnar og hefjast þær kl.11.30. Þá safnast fólk saman til bænar og íhugunar ritningartexta. Að samveru lokinni er súpa í boði í safnaðarheimili gegn gjaldi kr. 500 á mann.

Kyrrðarbæn. Kl. 12:00 – 13:00 á mánudögum er kyrrðarbæn í Kapellu vonarinnar þar sem setið er saman og farið með hugleiðingu og þögula bæn og þannig leitar hver og einn inn á við.

Fyrirbænahópur. Hittist á tveggja vikna fresti yfir vetrarmánuðina á þriðjudögum frá kl. 17:30-18:30. Þar eru fyrirbænaefni frá prestum, djákna og öðrum sem þess óska tekin fyrir.