Kæri Keflavíkursöfnuður
Fermingarbörn Keflavíkurkirkju munu ganga í hús í söfnuðinum 3. nóv. frá kl. 17:30 og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Þetta er árleg söfnun fermingarbarna um allt land fyrir vatnsbrunnum í Eþíópíu og Úganda.
Við hvetjum íbúa í Keflavíkursókn til að taka vel á móti fermingarbörnunum sem ávallt hafa staðið sig með vel og safnað upphæðum til þessa verkefnis sem hefur komið sér vel á þeim svæðum þar sem vatnsskortur er viðvarandi vandamál.