Fréttir

Guðsþjónusta með skírn og fermingu 1. Júlí kl.11:00

Kæru vinir, sunnudaginn 01. júlí er guðsþjónusta kl.11:00, í Keflavíkurkirkju, stundin verður einstök að því leyti að við berum barn til skírnar og síðan munu tvær stúlkur staðfesta Jesú sem leiðtoga lífs síns og fermast. Sr. Fritz Már þjónar fyrir altari og félagar úr Vox Felix sjá um tónlistina. Allir innilega velkomnir í sumarmessu í [...]

By |2018-06-27T21:27:39+00:0027. júní 2018 | 21:25|

Hátíðarmessa í Keflavíkurkirkju 17. júní

Sunnudaginn 17. júní á þjóðhátíðardaginn verður hátíðarguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju kl.12.30. Sr Fritz Már Jörgensson þjónar ásamt messuþjónum. Kór keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Allir innilega velkomnir.

By |2018-06-11T10:19:03+00:0011. júní 2018 | 10:17|

Sumar

Kæru vinir, nú í sumar verður fjölbreytt messuhald á Suðurnesjum, kirkjurnar deila með sér messuhaldi þannig að það er hægt að finna fjölbreyttur messur á svæðinu í allt sumar þrátt fyrir sumarfrí. Njótum þess að fara á milli og heimsækja nágranna okkar. Hér að neðan er að finna dagskrá sumarsins.   31.maí. Hvítasunna  Ytri Njarðvíkurkirkja [...]

By |2020-05-31T10:50:38+00:0031. maí 2018 | 11:29|

Guðsþjónusta með Vox Felix á sunnudagskvöld kl.20

Á sunnudagskvöld 27.maí, verður létt kvöldguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju kl.20. Vox Felix mun sjá um tónlistina undir styrkri stjórn Arnórs organista. Sr.Fritz Már leiðir stundina og gestaprestur verður sr.Díana Ósk Óskarsdóttir. Við hlökkum til að sjá ykkur öll.

By |2018-05-25T08:56:21+00:0025. maí 2018 | 08:52|

Dýrin í Hálsaskógi í Keflavíkurkirkju sunnudaginn 6.maí kl.11

Sunnudaginn 6. maí kl.11, verður fjölskylduguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju, barnahátíð í Reykjanesbæ stendur sem hæst og í tilefni af því kemur Leikfélag Keflavíkur í heimsókn og færa okkur valda kafla úr Dýrunum í Hálsaskógi. Það er óþarfi að kynna Dýrin í Hálsaskógi en að sama skapi óhætt að fullyrða að flestir Íslendingar þekkja þá kumpána Mikka Ref [...]

By |2018-04-30T10:53:12+00:0030. apríl 2018 | 10:31|

Skátamessa á sumardaginn fyrsta

Sumardagurinn fyrsti er ekki kirkjulegur helgidagur en þó birtingarmynd af trúar- og vonardegi sem sýnir okkur staðfestu þjóðarinnar er við segjum að sumarið sé komið sama hvernig viðrar. Þennan dag verður haldið í skrúðgöngu frá skátaheimili Heiðabúa að Keflavíkurkirkju kl. 12:30 og í framhaldi hefst skátamessa með Heiðabúum sem á sér langa sögu í Keflavíkurkirkju [...]

By |2018-04-17T12:20:28+00:0017. apríl 2018 | 11:27|

Pálmasunnudagur

Nú styttist í upprisuhátíð, páskarnir eru í vændum á pálmasunnudag 25. mars n.k. verður messa í kirkjunni okkar fallegu kl.11 að venju. Guðspjallið fjallar um innreið Jesú í Jerúsalem þegar fólkið breiddi klæði sín á veginn og veifaði pálmagreinum til að fagna komu hans en þannig var konungum fagnað á þeim tímum. Séra Fritz Már þjónar [...]

By |2018-03-19T09:06:29+00:0019. mars 2018 | 09:06|

Messa, sunnudagaskóli og súpusamfélag sunnudaginn 4.mars

Kæru vinir n.k. sunnudag kl.11:00 er að venju messa í Keflavíkurkirkju kl.11:00, sr.Fritz Már þjónar ásamt messuþjónunum Þórey Eyþórsdóttur og Helgu Jakobsdóttur. Guðspjall sunnudagsins fjallar um það þegar Jesús rekur út illan anda og er sérlega spennandi. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað undir styrkri leiðsögn Systu, Helgu, Jóhönnu og Jóns Árna. Eftir samveruna er boðið [...]

By |2018-02-26T10:29:47+00:0026. febrúar 2018 | 10:29|

Samtal um sorg og sorgarviðbrögð

Miðvikudaginn 7. mars kl. 17:30 verður samtal um sorg og sorgarviðbrögð í Keflavíkurkirkju. Flutt verður erindi þar sem fjallað verður um sorgina, birtingarmyndir hennar og leiðir til að vinna úr sorginni. Umsjón með samverunni hafa sr. Erla Guðmundsdóttir og sr. Fritz Már Jörgensson. Allir eru innilega velkomnir.

By |2018-02-23T10:01:39+00:0023. febrúar 2018 | 09:41|

Konudagsmessa í Keflavíkurkirkju

Sunnudaginn 18. ferúar verður konudagsmessa í Keflavíkurkirkju kl.11:00, sr.Fritz Már þjónar ásamt messuþjónunum Ólöfu Sveinsdóttur og Kristni Þór Jakobssyni. Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir (Sigga Stína) flytur okkur konudagshugvekjuna í ár. Sunnudagaskólinn er á sínum stað á sama tíma undir styrkri leiðsögn Systu, Helgu, Jóhönnu og Jóns Árna. Eftir samveruna er konudagssúpa í boði ásamt nýbökuðu brauði [...]

By |2018-02-12T12:43:05+00:0012. febrúar 2018 | 12:43|
Go to Top