Fréttir

Bjúgnaveisla eftir kyrrðarstund á miðvikduag 14. febrúar

Kæru vinir á miðvikudaginn verður kyrrðarstund að venju í Kapellu vonarinnar, prestar og organisti leiða stundina, Steinn Erlingsson mun syngja fyrir okkur bæði í stundinni og eins í samverunni eftir hana þegar við fögnum 103 ára afmæli kirkjunnar okkar og kveðjum þorrann með bjúgnaveislu. Boðið verður upp á hrossabjúgu eins og fólk getur í sig [...]

By |2018-02-12T11:45:40+00:0012. febrúar 2018 | 11:45|

Guðsþjónusta sunnudaginn 4. febrúar kl.11.

Í guðspjalli sunnudagsins 4. Febrúar sem er úr Lúkasarguðspjalli heyrum við af sáðningu sáðmannsins og hvernig sumt fellur í góðan jarðveg og vex og dafnar, á meðan annað fellur í verri jarðveg, og skrælnar og deyr. Að venju verður guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl.11 í Keflavíkurkirkju, sr.Fritz Már þjónar ásamt messuþjónunum Þóreyju og Helgu. Systa og hennar [...]

By |2018-01-29T12:11:23+00:0029. janúar 2018 | 12:11|

Kyrrðarstund, súpusamfélag og sunnudagaskóli!

Kæru vinir, nú er óhætt að segja að starfið sé komið á fulla ferð í fallegu kirkjunni okkar.  Fyrsta kyrrðarstund ársins í kapellu vonarinnar verður næstkomandi miðvikudag þ.17. janúar kl.12:00 í umsjón presta og Arnórs organista, komum saman og njótum góðrar stundar í hádeginu. Gæðakonur bera fram dásemdarsúpu og brauð eftir stundina. Sama dag hefst bænastund fyrir [...]

By |2018-01-15T10:51:49+00:0015. janúar 2018 | 10:51|

Guðsþjónusta sunnudaginn 14. janúar

Sunnudaginn 14.janúar kl. 11:00, kemur sr. Stefán Már Gunnlaugsson héraðsprestur til okkar í Keflavíkurkirkju og þjónar ásamt messuþjónum. Njótum saman góðrar stundar með góðu orði og fallegum sálmasöng. Arnór og kór Keflavíkurkirkju sjá um að leiða okkur í söng. Sunnudagaskólinn og súpusamfélagið hefjast sunnudaginn 21.janúar. Allir hjartanlega velkomnir

By |2018-01-08T12:36:39+00:008. janúar 2018 | 12:35|

Gleðilegt nýtt ár!

Kæru vinir, gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla. Næsta guðsþjónusta í Keflavíkurkirkju verður þann 14.janúar n.k. kl.11, þá mun sr. Stefán Már Gunnlaugsson héraðsprestur koma til okkar og messa. Miðvikudaginn 17.janúar kl.12 hefjast kyrrðarstundirnar í Kapellu vonarinnar. Sunnudaginn þar á eftir þann 21.janúar messar sr. Fritz Már og sunnudagaskólinn og súpusamfélagið hefjast. Við [...]

By |2018-01-07T11:12:28+00:007. janúar 2018 | 11:12|

Helgihald um áramótin í Keflavíkurkirkju

Kæru vinir, við kveðjum árið sem er að líða í Keflavíkurkirkju á gamlársdag með hátíðarguðsþjónustu kl. 16:00, kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Prestur er sr. Fritz Már Jörgensson. Á nýársdag fögnum við nýju ári með hátíðarguðsþjónustu kl. 14:00. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Prestur er sr. Erla Guðmundsdóttir. Gleðilegt ár og takk fyrir það sem [...]

By |2017-12-28T16:46:03+00:0028. desember 2017 | 16:46|

Messuhald yfir hátíðarnar

Kæru vinir, nú styttist í jólin og við í Keflvíkurkirkju hlökkum mikið til. Á aðfangadag verða þrjár guðsþjónustur í fallegu jólakirkjunni okkar. Sú fyrsta er klukkan 16:00 á aðfangadag en þá verður hátíðar barna- og fjölskyldustund þar sem jólaguðspjallið er sett upp af börnum sem sækja stundina og jólasálmar sungnir. Prestar eru sr.Erla Guðmundsdóttir og sr.Fritz [...]

By |2017-12-22T09:45:09+00:0022. desember 2017 | 09:45|

Annar sunnudagur í aðventu

Sunnudagur 10. desember kl. 11 Árlegt jólaball Keflavíkurkirkju verður þennan annan sunnudag í aðventu. Stundin hefst í kirkjunni með kertatendringu, bæn og söng. Því næst verður haldið inní Kirkjulund og dansað í kringum jólatréð undir gleðilegum og hefðbundnum jólatréssöng í umsjón Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Heyrst hefur að skeggjaðir sveinar kíkja við og taka sporin. Kaffi og [...]

By |2017-12-06T09:58:46+00:006. desember 2017 | 09:58|

Fyrsti sunnudagur í Aðventu

Á fyrsta sunnudegi í aðventu 3. desember kl.11 verður ljósamessa í Keflavíkurkirkju. Sr. Fritz Már þjónar ásamt fermingarbörnum og messuþjónum. Arnór og kór Keflavíkurkirkju leiða okkur í söng. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað og eftir stundina fáum við yndissúpu í boði sóknarnefndar og fermingarforeldra. Jón okkar Ísleifsson færir okkur brauð sem Sigurjónsbakarí gefur að venju. [...]

By |2017-11-27T11:31:46+00:0027. nóvember 2017 | 11:31|

Guðsþjónusta kl.11 og Allra heilagra messa klukkan 20. 19.nóvember.

Sunnudaginn 19. nóvember Guðsþjónusta í Keflavíkurkirkju kl.11. Fritz Már þjónar ásamt messuþjónum. Arnór og kór Keflavíkurkirkju leiða okkur í söng. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað og eftir stundina fáum við dásemdarsúpu í boði sóknarnefndar og fermingarforeldra. Jón okkar Ísleifsson færir okkur brauð sem Sigurjónsbakarí gefur að venju. Um kvöldið kl.20.00 verður allra heilagra messa í [...]

By |2017-11-13T11:09:56+00:0013. nóvember 2017 | 11:09|
Go to Top