Fréttir

Eide messa og sunnudagaskóli

Á sunnudag kl.11 er Eide messa í Keflavíkurkirkju, Sindre Eide er norskur prestur, sem unnið hefur stórvirki í að kynna trúartónlist fjarlægra þjóða með ólíkum hryn og sveiflu og laga að lútersku helgihaldi. Kikjukórinn okkar og Arnór organisti munu leiða okkur í söng og tónlist eftir Eide. Sr.Fritz Már þjónar á ásamt messuþjónum. Sunnudagaskólinn verður á [...]

By |2018-11-14T08:24:42+00:0014. nóvember 2018 | 08:24|

Söfnunarkvöld fermingarbarna 5. nóvember

Kæri Keflavíkursöfnuður   Fermingarbörn Keflavíkurkirkju munu ganga í hús í söfnuðinum í kvöld, 5. nóvember frá kl. 17:30, og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Þetta er árleg söfnun fermingarbarna um allt land fyrir vatnsbrunnum í Eþíópíu og Úganda.   Við hvetjum íbúa í Keflavíkursókn til að taka vel á móti fermingarbörnunum sem ávallt hafa staðið [...]

By |2018-11-05T12:46:18+00:005. nóvember 2018 | 12:45|

Hvítatasunnusamkoma og Allra heilagra messa.

Það er nóg að gera í kirkjunni á sunnudag þ.4 nóvember. Kl.11 er messa og sunnudagaskóli, gestir okkar í messunni koma frá Hvítasunnukirkjunni í Keflavík og mun forstöðumaður safnaðarins Kristinn Ásgrímsson leiða stundina ásamt sr.Fritz Má. Að venju býður sóknarnefnd upp á súpu sem borin er fram af fermingarforeldrum í kirkjulundi eftir stundina. Kl.20 um [...]

By |2018-10-31T07:37:21+00:0031. október 2018 | 07:36|

Fjölskylduguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju 21.október

Sunnudaginn 21.október kl.11, verður fjölskylduþjónusta í Keflavíkurkirkju, við verðum með fullt af skemmtilegu, sr.Fritz Már þjónar ásamt messuþjónum og fermingarbörnum. Njótum saman skemmtilegrar stundar með söng og gleði. Að stundinni lokinni reiða foreldrar fermingarbarna fram dásemdarsúpu í kirkjulundi í boði sóknarnefndar. Jón okkar Ísleifsson kemur með brauð sem Sigurjónasbakarí gefur að venju. Hlökkum til að sjá [...]

By |2018-10-16T14:24:20+00:0016. október 2018 | 14:23|

Gamaldagsmessa sunnudaginn 7. október kl.11

Að venju verður líf og fjör í kirkjunni á sunnudag. Við fáum til okkar góðan gest úr nágrannaprestakalli sr.Sigurð Grétar vin okkar sem mun þjóna með sr.Fritz Má. Sr.Sigurður Grétar fær uppfylltan drauminn sinn um að tóna heila messu í kirkjunni ásamt Arnóri og kór Keflavíkurkirkju. Garðar Guðmundsson verður messuþjónn og að sjálfsögðu verða Systa [...]

By |2018-10-01T10:56:21+00:001. október 2018 | 10:56|

Eide messa á sunnudag kl.11

Á sunnudag kl.11 er Eide messa í Keflavíkurkirkju, Sindre Eide er norskur prestur, sem unnið hefur stórvirki í að kynna trúartónlist fjarlægra þjóða með ólíkum hryn og sveiflu og laga að lútersku helgihaldi. Kikjukórinn okkar og Arnór organisti munu leiða okkur í söng og tónlist eftir Eide. Sr.Fritz Már þjónar á ásamt messu þjónum. Sunnudagaskólinn verður [...]

By |2018-09-19T07:57:13+00:0019. september 2018 | 07:57|

Úgúlelemessa 16. september kl. 11

Sunnudaginn 16. september kl. 11 verður að vanda messa og sunnudagaskóli í Keflavíkurkirkju. Þó verður messan með öðrum hætti en vanalega. Arnór organisti ætlar að geyma orgelskóna þennan dag, draga fram úgúlele og leika undir söng Kórs Keflavíkurkirkju með því einfalda en einstaka hljóðfæri. Systa og sunnudagaskólaleiðtogar halda utan um barnastundina. Súpa og brauð borið [...]

By |2018-09-11T09:27:27+00:0011. september 2018 | 09:27|

Sunnudagaskóli og messa n.k. sunnudag 9. september

Kæru vinir, á sunnudaginn þ.9.september hefst guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl.11 í Keflavíkurkirkju. Sr.Fritz Már þjónar fyrir altari og Arnór og kór Keflavíkurkirkju leiða okkur í söng og fallegri tónlist. Systa og hennar fólk sjá um gleðina og fjörið í sunnudagaskólanum. Allir eru innilega velkomnir og við hlökkum til að sjá ykkur öll.

By |2018-09-03T09:07:08+00:003. september 2018 | 09:07|

Kvöldmessa með Vox Felix 26.ágúst kl.20.

Sunnudagskvöld 26 ágúst n.k. kl.20, ætlum við að eiga saman góða stund í Keflavíkurkirkju, Arnór Vilbergsson mun leiða ungmennakór kirknanna á Suðurnesjum Vox Felix í stundinni sem munu færa okkur yndissöng í messuna. Sr.Fritz Már og sr.Erla Guðmundsdóttir þjóna í messunni. Verðandi fermingarbörn og aðstandendur þeirra eru boðin sérstaklega velkomin, og munum við segja frá [...]

By |2018-08-20T10:36:56+00:0020. ágúst 2018 | 10:23|

Kyrrlát kvöldstund í kapellu vonarinnar

Sunnudagskvöldið 19. ágúst kl. 20 verður kvöldmessa í Kapellu vonarinnar. Elmar Þór syngur af sinni einlægni, Arnór organisti leikur undir og sr. Erla flytur hugleiðingu útfrá texta í Matteusarguðspjalli sem enda á þessum orðum: Menn undruðust mjög og sögðu: „Allt gerir hann vel, daufa lætur hann heyra og mállausa mæla.“ Verið velkomin að njóta kyrrlátar [...]

By |2018-08-14T12:09:28+00:0014. ágúst 2018 | 12:09|
Go to Top