Guðsþjónusta með skírn og fermingu 1. Júlí kl.11:00

Guðsþjónusta með skírn og fermingu 1. Júlí kl.11:00

Kæru vinir, sunnudaginn 01. júlí er guðsþjónusta kl.11:00, í Keflavíkurkirkju, stundin verður einstök að því leyti að við berum barn til skírnar og síðan munu tvær stúlkur staðfesta Jesú sem leiðtoga lífs síns og fermast. Sr. Fritz Már þjónar fyrir altari og félagar úr Vox Felix sjá um tónlistina. Allir innilega velkomnir í sumarmessu í [...]

By |2018-06-27T21:27:39+00:0027. júní 2018 | 21:25|

Hátíðarmessa í Keflavíkurkirkju 17. júní

Sunnudaginn 17. júní á þjóðhátíðardaginn verður hátíðarguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju kl.12.30. Sr Fritz Már Jörgensson þjónar ásamt messuþjónum. Kór keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Allir innilega velkomnir.

By |2018-06-11T10:19:03+00:0011. júní 2018 | 10:17|

Kvöldgöngumessa 10. júní kl. 20

Helgihaldið okkar er með allt öðrum hætti á sumrin er venjan er yfir vetur. Sunnudagskvöldið 10. júní kl. 20 verður kvöldgöngumessa frá Keflavíkurkirkju. Við höldum af stað frá kirkjutröppum kl. 20. Sr. Erla og Arnór organisti leiða rölt í rólegheitum, segja fróðleik, flytja biblíuorð og hvetja til söngs við úgúlelespil. Staldrað verður í Keflavíkurkirkjugarði við [...]

By |2018-06-04T08:18:23+00:004. júní 2018 | 08:18|

Sumar

Kæru vinir, nú í sumar verður fjölbreytt messuhald á Suðurnesjum, kirkjurnar deila með sér messuhaldi þannig að það er hægt að finna fjölbreyttur messur á svæðinu í allt sumar þrátt fyrir sumarfrí. Njótum þess að fara á milli og heimsækja nágranna okkar. Hér að neðan er að finna dagskrá sumarsins.   31.maí. Hvítasunna  Ytri Njarðvíkurkirkja [...]

By |2020-05-31T10:50:38+00:0031. maí 2018 | 11:29|

Guðsþjónusta með Vox Felix á sunnudagskvöld kl.20

Á sunnudagskvöld 27.maí, verður létt kvöldguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju kl.20. Vox Felix mun sjá um tónlistina undir styrkri stjórn Arnórs organista. Sr.Fritz Már leiðir stundina og gestaprestur verður sr.Díana Ósk Óskarsdóttir. Við hlökkum til að sjá ykkur öll.

By |2018-05-25T08:56:21+00:0025. maí 2018 | 08:52|

Hvítasunnudagur í Keflavíkurkirkju

Gleðilega afmælishátíð er jafnan kveðjan á hvítasunnudegi er kristin kirkjan um allan heim fagnar fæðingarhátíð kirkjunnar. Í Keflavíkurkirkju verða fimm ungmenni fermd á hvítasunnudag við hátíðarguðsþjónustu kl. 11. Hjónin Guðrún Hákonardóttir og Stefán Jónsson eru messuþjónar. Kórfélagar syngja undir stjórn Esterar Ólafsdóttur. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar.   Verið öll velkomin að koma, njóta og gleðjast [...]

By |2018-05-14T09:08:43+00:0014. maí 2018 | 09:03|

Sunnudagsbíltúr í Útskálakirkju 13. maí kl. 11

Öldum saman urðu Keflvíkingar að sækja kirkju á Útskálum en sunnudagsbíltúr í Útskálakirkju er einmitt dagskrá þessa sunnudags er gamla sóknarkirkjan verður heimsótt. Systa mætir með gítarinn og leiðir létta söngva ásamt að segja biblíusögu. Sr. Erla veitir  fróðleik um kirkjuna. Boðið verður upp á kaffi, safa og heimabakaðar súkkulaðibitakökur. Tilvalið að koma með smurt [...]

By |2018-05-11T17:01:18+00:0011. maí 2018 | 17:01|

Uppstigningardagur 10. maí kl. 13 – Dagur aldraðra

Fimmtudagur 10. maí kl. 13 Uppstigningardagur er kirkjudagur aldraðara á Íslandi. Víða er því öldruðum sérstaklega boðað til helgihalds á þessum degi. Í Keflavíkurkirkju verður guðsþjónusta kl. 13. Eldey, kór eldri borgara á Suðurnesjum, syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Prestur er sr. Fritz Már Jörgensson. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti í Kirkjulundi að lokinni guðsþjónustu. Þennan sama [...]

By |2018-05-06T21:13:04+00:006. maí 2018 | 21:12|

Dýrin í Hálsaskógi í Keflavíkurkirkju sunnudaginn 6.maí kl.11

Sunnudaginn 6. maí kl.11, verður fjölskylduguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju, barnahátíð í Reykjanesbæ stendur sem hæst og í tilefni af því kemur Leikfélag Keflavíkur í heimsókn og færa okkur valda kafla úr Dýrunum í Hálsaskógi. Það er óþarfi að kynna Dýrin í Hálsaskógi en að sama skapi óhætt að fullyrða að flestir Íslendingar þekkja þá kumpána Mikka Ref [...]

By |2018-04-30T10:53:12+00:0030. apríl 2018 | 10:31|

Um morgun og kvöld sunnudaginn 29. apríl

Sunnudagurinn 29. apríl kl. 11 Í tilefni af Barnahátíð fá við heimsókn í Keflavíkurkirkju af Stoppleikhópnum  með leiksýninguna Ósýnilegi vinurinn. Verkið segir frá Jónatan Finkeltopp og Pálu Pimpen er kynnast einn daginn og verða vinir. Saman eiga þau eftir að læra ýmislegt, t.d að kunna að fyrirgefa og sættast. Í leikritinu er brugðið upp skemmtilegum frásögnum úr sköpunarsögu Biblíunnar og samskipti [...]

By |2018-04-23T12:19:32+00:0023. apríl 2018 | 12:19|
Go to Top