Messa og bangsasunnudagaskóli 6. mars kl. 11

Messa og bangsasunnudagaskóli 6. mars kl. 11

Sunnudagurinn 6. mars er fyrsti sunnudagur í föstu. Þá kl. 11 er messa í höndum sr. Erlu, Arnórs organista og félaga úr Kór Keflavíkurkirkju. Hjónin Stefán og Guðrún eru messuþjónar. Sunnudagaskólinn byrjar í kirkjuskipinu og heldur svo í Kirkjulund. Marín, Helga og Ingi Þór bjóða uppá bæn, biblíusögu og söng. Öll börn hvött til að [...]

By |2022-03-05T15:10:38+00:005. mars 2022 | 15:10|

Kvöldmessa og verbúð í kjölfarið… Sunnudaginn 13.febrúar

Kæru vinir, sunnudaginn 13.febrúar kl.20-20.40 verður kvöldstund í Keflavíkurkirkju. Séra Fritz Már þjónar fyrir altari, Arnór Vilbergsson organisti ásamt félögum úr kór Keflavíkurkirkju færa okkur sálma og fallega tónlist. Það er alveg upplagt að njóta þess að mæta í messu í Keflavíkurkirkju og fara svo beint heim að horfa Verbúðina... Allir innilega velkomnir og þá [...]

By |2022-02-09T10:26:16+00:008. febrúar 2022 | 09:38|

Fjölskyldumessa 6. febrúar kl. 11

Með gleði bjóðum við til fjölskyldumessu sunnudaginn 6. febrúar kl. 11 í Keflavíkurkirkju. Grybos leikur á gítar, Helga og Marín leiða bæn og söng og sagan af Jóhannesi skírara verður sögð. Sr. Erla þjónar. Mikið hlökkum við til að sjá ykkur á ný.

By |2022-02-02T20:49:02+00:002. febrúar 2022 | 20:49|

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli sunnudaginn 12. desember

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli 12. desember kl. 11. Arnór organisti og félagar í kór Keflavíkurkirkju leiða okkur í söng.  Séra Fritz Már leiðir stundina. Sunnudagaskólaleiðtogar eru með sunnudagaskólaí Kirkjulundi á sama tíma. Verið öll innilega velkomin

By |2021-12-09T09:58:30+00:009. desember 2021 | 09:57|

Annar sunnudagur í aðventu

Aðventustund og sunnudagaskóli 5. desember kl. 11 Er við kveikjum á Betlehemskertinu á öðrum sunnudegi í aðventu bjóðum við upp á lágstemmda stund í Keflavíkurkirkju. Arnór organisti leikur undir söng kórfélaga og sr. Erla leiðir stundina. Sunnudagaskólaleiðtogar leiða stund í Kirkjulundi á sama tíma. Megi aðventan snerta við og styrkja trú okkar.

By |2021-11-30T10:15:09+00:0030. nóvember 2021 | 10:15|

Jólalýsing í Kirkjugörðum Keflavíkur – Opnunartími

Opnunartími Kirkjugarða Keflavíkur vegna móttöku lýsingargjalda og til að aðstoða þá sem á aðstoð þurf að halda við uppsetningu krossa verður: Miðvikudagur 24. nóvember kl: 13-17 Fimmtudagur 25. nóvember kl: 13-17 Föstudagur 26. nóvember kl: 13-17 Laugardagur 27. nóvember kl: 10-15 Sunnudagur 28. nóvember kl: 13-15 Frá 1. – 17. desember verður opið þriðjudaga og [...]

By |2021-11-29T14:01:57+00:0028. nóvember 2021 | 14:22|

Sunnudagur 28.nóvember í Keflavíkurkirkju

Kæru vinir, Sunnudaginn 28.nóvember verður guðsþjónusta og sunnudagaskóli í Keflavíkurkirkju kl.11. Sunnudagurinn er fyrsti sunnudagur í aðventu og því fáum við að sjá spádómskertið loga á aðventukrönsunum okkar. Séra Fritz Már þjónar fyrir altari og Arnór Vilbergsson ásamt félögum úr kór Keflavíkurkirkju leiða okkur áfram í tónlist og sálmasöng. Sunnudagaskólinn verður á sama tíma í [...]

By |2021-11-26T09:36:08+00:0026. nóvember 2021 | 09:32|

Sunnudagurinn 21. nóvember

Sunnudagurinn 21. nóvember kl. 11. Stöðfirðingurinn Sólmundur Friðriksson leikur og syngur við morgunmessu. Sr. Erla þjónar. Helga Bjarnadóttir er messuþjónn dagsins. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í Kirkjulundi. ALexander, Helga og Marín bjóða uppá samveru með söng, bæn, biblíusögu og brúðum. Minnum á grímuskyldu og að gætum að sóttvörnum.  

By |2021-11-17T11:02:45+00:0017. nóvember 2021 | 11:02|

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli Sunnudaginn 14. nóvember

Sunnudaginn 14. nóvember verður guðsþjónusta í Keflavíkurkirkju. Séra Fritz Már þjónar fyrir altari, kór Keflavíkurkirkju undir stjórn Arnórs Vilbergssonar stýrir sálmasöng. Sunnudagaskólinn verður á sama tíma í Kirkjulundi. Athugið að vegna fjöldatakmarkana verður gengið inn í sunnudagaskólann úr innganginum við Kirkjulund. Verið öll innilega velkomin.

By |2021-11-14T09:32:26+00:0014. nóvember 2021 | 09:32|

Allra heilagra messu aflýst

Kæra samfélag Keflavíkurkirkja og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hafa í sameiginingu tekið ákvörðun um, í ljósi aukinna og fjölda smita, að aflýsa Allra heilagra messu nk. sunnudagskvöld kl. 20. Þessi messa er áralangt samstarf Keflavíkurkirkju og HSS og hefur ávallt verið fjölmenn stund. Þykir okkur leitt að þurfa að aflýsa í ár en biðjum ykkur um aðstoð [...]

By |2021-11-07T15:37:13+00:007. nóvember 2021 | 15:37|
Go to Top