Guðsþjónusta kl. 13
Sunnudaginn 1. maí kl. 13 er guðsþjónusta í Keflavíkurkirkju. Sr. Erla og sr. Eva Björk þjóna. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Tvær stúlkur verða fermdar. Allir velkomnir.
Sunnudaginn 1. maí kl. 13 er guðsþjónusta í Keflavíkurkirkju. Sr. Erla og sr. Eva Björk þjóna. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Tvær stúlkur verða fermdar. Allir velkomnir.
Sunnudaginn 1. maí kl. 11 verður flutt orgeltónlistarævintýrið Lítil saga úr orgelhúsi sem leiðir hlustandann inn í töfraheim pípuorgelsins á skemmtilegan hátt. Söguna gerði Guðný Einarsdóttir, organisti en tónlistina samdi Michael Jón Clarke, tónskáld. Sagan fjallar um orgelpípurnar sem búa í orgelhúsinu. Það gengur á ýmsu í samskiptum hjá orgelpípunum og Sif litla sem er [...]
Hafdís og Klemmi eru börnum velkunnug sem vinirnir úr þáttaseríunum Daginn í dag. Þau koma til okkar í Keflavíkurkirkju í eigin persónu, sunnudaginn 24. apríl kl. 11. Þar koma þau fram í leiksýningunni Hafdís og Klemmi og leyndardómar háaloftsins. Sýningin, sem miðlar kristlegum boðskap, fjallar um ævintýri vinanna tveggja sem finna dularfullt tæki uppiá háalofti [...]
Fermingarbörnin er sannarlega fallegir vorboðar. Nú er mikið tilstand og gleði í Keflavíkurkirkju því fermingar eru að hefjast. Fermingardagar eru þessir: Sunnudaginn 3. apríl kl. 11 og 14 - Heiðarskólabörn Sunnudaginn 10. apríl kl 11 - Myllubakkaskólabörn Sunnudaginn 17. apríl kl. 11 og 14 - Holtaskólabörn Enginn sunnudagaskóli er að meðan fermingar standa yfir.
Nú er námskeiðið Biblíusögur fyrir fullorðna loksins að fara af stað. Séra Guðrún Karls Helgudóttir prestur í Grafarvogskirkju verður með fyrsta erindið. Í Biblíunni eru nokkrar hræðilegar sögur sem segja frá því allra ljótasta í mannlegu eðli, þetta eru sögur sem kirkjan hefur í gegnum árin átt erfitt með að ræða en Guðrún er sko [...]
Sjöundi dagur febrúarmánuðar er sunnudagur í föstuinngangi en þá verður frásögn um skírn Jesú til skoðunar. Sunnudagskólinn er á sama tíma kl. 11 undir stjórn Önnu Huldu og Jóns Árna. Messuþjónarnir eru Stefán Jónsson og Guðrún Hákonardóttir. Hjónin Jóhanna og Jóhann matreiða súpu sem boðið er uppá í lok messu Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. Útvarpað [...]
Guðspjall Biblíudagsins sem er næsti sunnudagur fjallar um sáðmann og fræ...fræin eru orð Guðs og það er okkar að taka á móti þeim. Messa og sunnudagaskóli kl. 11, kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Messuþjónar taka á móti gestum og lesa texta, prestur er sr. Eva Björk Valdimarsdóttir. Það verður stuð í sunnudagaskólanum [...]
Við viljum vekja athygli á erindi um sorg og sorgarviðbrögð í Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 26. janúar kl 20:00. Vilborg Davíðsdóttir segir frá vegferð sinni og hennar heittelska með sjúkdómi sem þau vissu að myndi draga hann til dauða og fyrsta árinu eftir að hún varða ekkja. Endilega kíkið!
Sönghópurinn Vox Felix syngur í messu sunnudaginn 24. janúar kl. 11. Á sama tíma er sunnudagskóli. Súpusamfélag í Krikjulundi að lokinni messu. Linda Gunnarsdóttir og Marín Hrund Jónsdóttir eru messuþjónar. Þórdís Lúðvíksdóttir og Erlingur Arnarsson eru súpuþjónar. Prestur er Erla Guðmundsdóttir Útvarpað á Hljóðbylgju Suðurnesja fm 101.2
,,Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra, ásjóna hans skein sem sól og klæði hans urðu björt eins og ljós" Segir meðal annars í guðspjalli næsta sunnudags. Við ætlum að velta fyrir okkur tengslum Jesú og fleiri ofurhetja. Sunnudagaskólinn hefst aftur eftir jólafrí með pompi og prakt í umsjón Systu, Önnu Huldu og Esterar. Messa og [...]