Umhyggja, gleði og kraftur

Messa og sunnudagaskóli í janúar

  Sunnudagaskólinn hefst 17. janúar kl. 11 á þessu nýja ári. Rótarýklúbbi Keflavíkur og Málfundafélaginu Faxa hefur í mörg ár verið tileinkað fyrstu messu hvers árs sem þetta nýár er 10. janúar kl. 11. Verið öll hjartanlega velkomin.    

By |2016-01-02T17:30:00+00:002. janúar 2016 | 17:30|

Gamlárs- og Nýársdagur

Gamlársdagur 31. desember Hátíðarguðsþjónusta kl. 18:00. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Prestur sr. Eva Björk Valdimarsdóttir. Messuþjónn er Helga Jakobsdóttir. Nýársdagur 1. janúar Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Prestur er sr. Erla Guðmundsdóttir. Kjartan Már Kjartansson flytur hátíðarræðu. Messuþjónar eru Ólöf Sveinsdóttir og Kristinn Þór Jakobsson.   Útvarpað [...]

By |2015-12-30T16:26:22+00:0030. desember 2015 | 16:26|

Jólablað Faxa

Jólablað Faxa þetta árið er tileinkað aldarafmæli Keflavíkurkirkju og mikið erum við glöð með þetta eintak. Að afmælisblaðinu unnu Dagný Gísladóttir, formaður Kórs Keflavíkurkirkju, ritstýrur Faxa Sigrún Ásta Jónsdóttir og Svanhildur Eiríksdóttir, Svavar í Stapaprent auk blaðstjórnar Faxa. Keflavíkurkirkja þakkar þeim er sýndu stuðning með styrktarlínum og auglýsingum í blaðinu, þeim sem veittu viðtöl og ekki síst [...]

By |2015-12-29T19:47:36+00:0029. desember 2015 | 19:43|

Hátíðarstundir í Keflavíkurkirkju

Hátíðarguðsþjónustur yfir jól og áramót eru eftirfarandi: Aðfangadagur 24. desember Jólin allstaðar, hátíðar barna- og fjölskyldustund kl. 16:00  Jólaguðspjall sett upp og jólasálmar sungnir. Prestar eru Erla Guðmundsdóttir og Eva Björk Valdimarsdóttir. Messuþjónar eru Ólöf Sveinsdóttir og Jóhanna María Kristinsdóttir. Hátíðarguðsþjónusta kl. 18:00  Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Prestar eru Erla Guðmundsdóttir og Eva [...]

By |2015-12-21T10:05:55+00:0016. desember 2015 | 12:26|

Aðventukvöld á fallegum nótum

Þriðja og síðasta aðventukvöldið í Keflavíkurkirkju verður sunnudagskvöldið 13. desember kl. 20. Kór Keflavíkurkirkju og börn í skapandi söngstarfi í Keflavíkurkirkju syngja létt og hátíðleg jólalög. Seríurnar gefa okkur fallega flaututóna. Organistinn leiðir kórirnn en Íris Dröfn og Freydís Kneif leiða barnahópinn.          

By |2015-12-12T09:47:04+00:0010. desember 2015 | 17:05|

Jólaball Keflavíkurkirkju

Jólaball Kefavíkurkirkju verður haldið sunnudaginn 13. desember kl. 11. Við byrjum í kirkjuskipinu og færum okkur síðan í Kirkjulund þar sem félagar úr Kór Keflavíkurkirkju munu sjá um taktinn í kringum jólatréð. Þá munu skeggjaðir sveinar vitja okkar með hollt og gott í poka. Heitt á könnunni og piparkökur í boði. Verið öll velkomin

By |2015-12-10T17:25:01+00:009. desember 2015 | 08:44|

Bruninn í SKildi – Komið vel klædd

Aðventukvöld Keflavíkurkirkju, 6. desember kl. 20, verður helgað sorgaratburði sem markaði þorpsbúa fyrir 80 árum. Á jólatrésskemmtun fyrir börn í félagsheimilinu Skildi 30. desember 1935 voru 180 börn og 20 fullorðinir að ganga kringum jólatré þegar kviknaði í silkipappír sem vafið hafði verið utan um jólatrésfótinn og varð strax mikið eldhaf. Tíu manns létust þar [...]

By |2015-12-05T07:43:51+00:005. desember 2015 | 07:43|

Jesús, C.S. Lewis og J.R.R. Tolkien

,,Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða" segir í guðspjallstexta næsta sunnudags sem er annar sunnudagur í aðventu. Við hugum að komu frelsarans en C.S. Lewis og J.R.R. Tolkien verða líka til umfjöllunnar. Messa og sunnudagaskóli kl. 11 kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Messuþjónar [...]

By |2015-12-03T17:16:22+00:003. desember 2015 | 17:10|

Eldey syngur jólaperlur á aðventukvöldi í Keflavíkurkirkju

Fyrsta sunnudagskvöld í aðventu, kl. 20, mun Eldey syngja jólapelur í Keflavíkurkirkju. Þá syngja kórmeðlimir einnig einsöng og Gunnar Kristjánsson skeiðar af stað í skeiðarspilun. Af mikilli gleði leiðir Arnór organisti þennan kraftmikla kór þorskaðra einstaklinga á Suðurnesjum. Kjartan Már Kjartansson mun gefa okkur góða orð á þessu aðventukvöldi. Hann er einmitt mömmustrákar einnar kórkonu [...]

By |2015-11-27T12:26:12+00:0027. nóvember 2015 | 12:21|

Fyrsti sunnudagur í aðventu

Sunnudagurinn 29. nóvember er fyrsti sunnudagur nýs kirkjuárs. Þann dag kl. 11 er hefðbundin messa og sunnudagaskóli. Anna Hulda og Systa sjá um sunnudagaskólann. Félagar úr kór Keflavíkurkirkju leiða söng undir stjórn Arnórs organista. Ása Kristín og Dagfríður eru messuþjónar dagsins. Þá verður súpa og brauð í boði að lokinni stund en það eru súpuþjónar [...]

By |2015-11-23T09:48:29+00:0022. nóvember 2015 | 20:08|
Go to Top