Umhyggja, gleði og kraftur

Loksins, loksins!

Loksins, loksins er orgelið aftur tengt eftir langa fjóra mánuði. Organistinn búinn að sitja við það og æfa alla vikuna. Allir velkomnir að njóta tónanna í messu á sunnudaginn kl. 11. Sunnudagaskólinn er á sama tíma. Súpuþjónar og fermingarforeldrar reiða fram súpu og brauð. Prestur er sr. Erla Guðmundsdóttir

By |2016-09-29T12:30:50+00:0029. september 2016 | 12:29|

Súpa, sunnudagaskóli og messa

Sævar Helgi Jóhannsson mun spila undir kórsöng í messu sunnudagsins 18. september kl. 11. Á sama tíma verður sunnudagaskóli og auðvitað súpa og brauð í boði í lokin. Prestur er sr. Erla Guðmundsdóttir

By |2016-09-16T08:49:38+00:0016. september 2016 | 08:48|

Morgunmessa með fermingarbarni

Sunnudaginn 21. ágúst kl. 11 er messa í Keflavíkurkirkju. Fermingarstúlkan Ísabella Sóley Einarsdóttir mun ganga að altarinu og játa því að hafa Jesú Krist að sem leiðtoga í lífi sínu. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Arnórs organista. Sr. Erla er prestur.   Útvarpað verður frá Hljóðbylgju Suðurnesja fm 101.2

By |2016-08-20T21:17:18+00:0019. ágúst 2016 | 19:46|

Arnór, Elmar og Erla í kvöldmessu

Sunnudagskvöldið 14. ágúst kl. 20 verður kósýkvöldmessa í Kapellu vonarinnar. Elmar Þór mun syngja af sinni einlægni, Arnór organisti leika undir og Erla flytja predikun útfrá texta í Matteusarguðspjalli sem enda á þessum orðum:  Menn undruðust mjög og sögðu: „Allt gerir hann vel, daufa lætur hann heyra og mállausa mæla.“

By |2016-08-11T11:07:57+00:0011. ágúst 2016 | 11:07|

Kvöldganga og kvöldkaffi

Fyrr í sumar aflýstum við hreyfanlegri helgistund vegna rigningar þegar ætlunin var að ganga um slóðir Keflavíkurkirkju. Þar sem himinn lofar góðu sunnudagskvöldið 7. ágúst kl. 20 verður göngumessa um gamla bæinn í Keflavík. Gengið verður frá kirkjutröppum. Arnór organisti leiðir okkur í söng og hver veit nema hann hafi harmónikku um háls. Sr. Erla [...]

By |2016-08-05T11:51:11+00:005. ágúst 2016 | 11:48|

Gengið um gamla bæinn

Sunnudagskvöldið 19. júní kl. 20 verður hreyfanleg helgistund á slóðum Keflavíkurkirkju er við göngum um gamla bæinn í Keflavík. Arnór organisti leiðir okkur í söng og hver veit nema hann hafi harmónikku um háls. Sr. Erla verður með hugleiðingu og fróðleik. Undir berum himni biðjum við bæn Drottins. Að lokinni göngu sameinumst við í kaffbolla [...]

By |2016-06-14T12:09:03+00:0014. júní 2016 | 12:06|

Sumardagskrá Keflavíkurkirkju

12. júní kl. 20          Kvöldmessa   - Kapella vonarinnar 17. júní kl. 12:30     Hátíðarguðsþjónusta - Kirkjulundur 22. júní kl. 20          Kvöldmessa - göngumessa um gamlabæinn. Kvöldkaffi hjá sóknarpresti 26. júní kl. 20          Kvöldmessa - Kapella vonarinnar 10. júlí kl. 12:30   [...]

By |2017-03-17T22:28:33+00:0013. júní 2016 | 13:20|

Heiður á rólegum nótum í kvöldmessu

Sunnudagskvöldið 12. júní kl. 20 verður kvöldmessa í Kapellu vonarinnar, Keflavíkurkirkju. Bræðurnir Hjörleifur og Eiður skipa dúettinn Heiður. Þeir munu leika og spila sálma og dægurlög en sr. Erla mun þjóna sem prestur. Allir velkomnir á rólega og innihaldsríka kvöldstund.

By |2016-06-10T10:16:52+00:0010. júní 2016 | 10:04|

Léttmessa 29. maí kl. 11

Sunnudaginn 29. maí kl. 11 verður messa með léttu sniði þar sem fermingarbörnum 2017 og fjölskyldum er sérstaklega boðið. Ungmennakórinn Vox Felix syngur undir stjórn Arnórs organista. Prestar eru Erla og Eva Björk. Messan fer fram í Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju vegna framkvæmda í kirkjuskipi. Skráning í fermingarfræðslu 2016-2017 er hafin og er hún með rafrænum [...]

By |2017-03-17T22:28:38+00:0027. maí 2016 | 09:29|

Hvítasunnudag kl. 11 er messa í Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Prestur er Erla Guðmundsdóttir

By |2016-05-13T14:00:53+00:0013. maí 2016 | 14:00|
Go to Top