Fermingar sunnudaginn 7. maí
Sunnudaginn 7. maí verða tvær fermingarathafnir í kirkjunni, kl. 11 og 14 og þá verða Holtaskólabörnin fermd af prestunum Erlu og Evu Björk. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista og messuþjónar verða Stefán Jónsson, Guðrún Hákonardóttir, Ólöf Sveinsdóttir og Kristinn Þór Jakobsson.
Ég er brauð lífsins
Í guðspjalli komandi sunnudags er segir Jesús ,,Hver sem etur af þessu brauði mun lifa að eilífu. Og brauðið er líkami minn sem ég gef heiminum til lífs.“ Þarna er Jesús að tala til lærisveina sinna og þeirra sem fylgdu honum á fyrstu öld okkar tímatals. Getur verið að hann sé líka að tala til [...]
Guðsþjónusta 19.mars
Lygin verður til umfjöllunar í predikun sunnudagsins. Er alvarlegt í augum Guðs að ljúga? Alltaf eða stundum? Jesús skammar gyðinga í guðspjalli dagsins vegna þess að þeir sjá ekki sannleikann og sjálfa sig. Guðsþjónustan hefst klukkan 11 og messuþjónar taka á móti gestum og lesa ritningartexta. Kór Keflavíkurkirkju leiðir sálmasöng undir stjórn Arnórs Vilbergssonar og [...]
Æskulýðsdagurinn er á sunnudaginn
Næsta sunnudag er æskulýðsdagur kirkjunnar. Þá verða tvær messur í Keflavíkurkirkju og kaffihús í Kirkjulundi þar sem við söfnum fyrir húsum fyrir munaðarlaus börn í Úganda. Fjölskyldumessa verður klukkan 11:00. Þar munu fermingarbörn lesa bænir. Arnór, Systa, Erla, Eva og Helga leiða stundina og leynigestur mætir. Súpa og brauð verður að sjálfsögðu eftir messuna. Æskulýðsmessa [...]
Messa 26. febrúar
Messa og barnastarf klukkan 11. Messuþjónar taka á móti gestum og lesa ritningartexta. Kór Keflavíkurkirkju leiðir sálmasöng undir stjórn Arnórs Vilbergssonar og sr. Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar. Sunnudagaskólinn verður að sjálfsögðu á sínum stað með Systu, Unni og Helgu. Boðið verður upp á súpu og brauð í Kirkjulundi að lokinni guðsþjónustu.
Guðsþjónusta 12. febrúar
Er Jesús að tala fyrir kapítalisma í guðspjalli sunnudagsins? Það er textinn um talenturnar, Mattheus 25.14-30. Presturinn er að velta þessu fyrir sér. Er predikun næsta sunnudags einfaldlega, hver er sinnar gæfu smiður? Guðsþjónustan hefst klukkan 11 og messuþjónar taka á móti gestum og lesa ritningartexta. Kór Keflavíkurkirkju leiðir sálmasöng undir stjórn Arnórs Vilbergssonar og [...]
Messa og sunnudagaskóli 29. janúar
Það er allt að gerast í guðspjalli sunnudagsins! Jesús gengur á vatni út til lærisveina sinna sem eru á báti í óveðri. Þeir halda að hann sé vofa. Hann býður lærisveinum sínum að stíga út úr bátnum til sín og beint í hringiðu stormsins á vatninu. Við ætlum að velta fyrir okkur hvað Jesús sé [...]
Rótarý- og Faxafélagar í messu
Auk oss trú eru upphafsorð guðspjalls sunnudagsins 22. janúar. Þá kl. 11 er messa þar sem Rótarý- og Faxafélagar fjölmenna líkt og þeir gera ár hvert. Arnór leiðir kórfélagar og kirkjugesti í söng. Sr. Erla Guðmundsdóttir ásamt messuþjónum þjónar. Á sama tíma er sunnudagaskóli í umsjón Systu, Unnar og Helgu. Að venju er súpa og brauð [...]
Messa og sunnudagaskóli
Sunnudaginn 15. janúar fer sunnudagskólinn aftur af stað. Að vanda verður er messa og sunnudagkólinn sem byrjar inni í kirkju klukkan 11. Súpuþjónar og fermingarforeldrar reiða fram súpu og brauð að lokinni messu. Kór Keflavíkurkirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn Arnórs organista og sr. Eva Björk þjónar. Guðspjallið segir frá Sakkeusi sem langar svo mikið [...]