Aðventu- og jólahátíð í Keflavíkurkirkju

Aðventu- og jólahátíð í Keflavíkurkirkju

Aðventuhátíð í Keflavíkurkirkju 27. nóvember - fyrsti sunnudagur í aðventu Kl. 11 - Léttmessa Kl. 20 - Friður frelsarans – Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri flytur hugleiðingu. Eldeyjarkórinn syngur 4. desember - annar sunnudagur í aðventu Kl. 11 – Ljósamessa leidd af fermingarbörnum Kl. 20 – Tímamótaaðventukvöld - Páll V. Bjarnason, arkitekt og Keflvíkingur, flytur hugleiðingu. [...]

By |2016-11-25T13:38:42+00:0025. nóvember 2016 | 08:26|

…í fangelsi var ég og þér komuð til mín

Því hungraður var ég og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég og þér hýstuð mig, nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var ég og þér komuð til mín (Matt 25.35-36). Þessi texti er hluti af guðspjalli næsta sunnudags [...]

By |2017-03-17T22:27:46+00:0018. nóvember 2016 | 00:46|

Sorgin og fjölskyldan

Vigfús Bjarni Alberbertsson flytur erindi sem ber yfirskriftina Sorgin og fjölskyldan í Keflavíkurkirkju mánudagskvöldið 28. nóvember klukkan 20:00. Vigfús Bjarni er sjúkrahúsprestur á Landsspítalanum háskólasjúkrahúsi og hefur starfs síns vegna mætt fólki við erfiðar aðstæður og fylgt því í úrvinnslu áfalla og sorgar. Hann hefur lokið framhaldsnámi í sorgar- og áfallavinnu frá Bandaríkjunum.  Hann fjallar hér um sorg [...]

By |2017-03-17T22:27:49+00:0016. nóvember 2016 | 12:45|

Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.

Sunnudagurinn 13. nóvember er Kristniboðsdagur Þjóðkirkjunnar. Að vanda er messa og sunnudagkóli kl. 11. Súpuþjónar og fermingarforeldrar reiða fram súpu og brauð. Kórfélagar syngja undir stjórn Arnórs organista. Sr. Erla þjónar.   Í guðspjallið Kristniboðsdagsins segir: Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður og sonar og heilags anda og kennið [...]

By |2016-11-09T08:38:30+00:009. nóvember 2016 | 08:38|

Fjölskyldumessa

Verið velkomin í fjölskyldumessu á sunnudaginn klukkan 11. Það verður líf og fjör,  sr. Eva Björk Valdimarsdóttir, Sigurbjört Kristjánsdóttir, Helga Sveinsdóttir, Jóhanna Kristinsdóttir, Rebbi og Vaka skjaldbaka taka vel á móti kirkjugestum. Skemmtileg samvera fyrir alla aldurshópa. Hver er mestur, er yfirskrift guðspjallstextans og við fræðumst og söfnum líka fyrir vatnsbrunnum í Eþíópíu en fermingarbörn kirkjunnar [...]

By |2017-03-17T22:27:54+00:004. nóvember 2016 | 16:16|

Látinna minnst í kvöldmessu

  Hefð hefur skapast að Keflavíkurkirkja og starfsfólk á Heilbriðgisstofnun Suðurnesja bjóða til allra heilagra messu sem verður nk. sunnudagskvöld, 6. nóv. kl. 20. Á fyrsta sunnudegi í nóvember er látinna sérstaklega minnst í kirkjum landsins, í kristnum kirkjum um allan heim og fleiri ljós en vanalega sjást tendruð í kirkjugörðum. Starfsmaður HSS mun lesa [...]

By |2016-11-04T07:42:00+00:004. nóvember 2016 | 07:40|

Fermingarbörn ganga í hús og safna fyrir vatni

Tvöþúsund vers í Biblíunni snúast um að hjálpa þeim sem minna mega sín. Fermingarbörn Keflavíkurkirkju munu ganga í hús í söfnuðinum fimmtudaginn 3. nóvember frá kl. 18 og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Þetta er árleg söfnun fermingarbarna um allt land fyrir vatnsbrunnum í Eþíópíu og Úganda. Við hvetjum íbúa í Keflavíkursókn til að taka [...]

By |2017-03-17T22:27:59+00:001. nóvember 2016 | 18:19|

Önnur bleik og hin hefðbundin

Sunnudaginn 30. október eru tvær messur í Keflavíkurkirkju. Sú  fyrri er hefðbundin og hefst að venju kl. 11. Kórfélagar syngja undir stjórn Arnórs organista. Sr. Erla predikar útfrá Matteusarguðspjalli þar sem við erum minnt á að íhuga hverjum við gjöldum tolla í lífinu. Súpuþjónar og fermingarforeldrar reiða fram súpu og brauð. Sunnudagaskólinn verður á sínum [...]

By |2016-10-25T21:23:06+00:0025. október 2016 | 21:23|

70×7

Já, 70x7 kemur fram í guðspjallartexta 23. október. Þessar tölur verða því til umræðu í predikun á þeim degi í messu kl. 11 í Keflavíkurkirkju. Súpuþjónar og fermingarforeldar reiða fram súpu og brauð. Arnór og Kórfélagar leiða söng. Sr. Erla þjónar. Systa, Jóhanna og Helga verða í sunnudagaskólanum en þangað koma Rebbi og Vaka skjaldbaka [...]

By |2016-10-20T08:51:54+00:0020. október 2016 | 08:48|

Dagur heilbrigðisþjónustu í kirkjunni

Í sunnudagsmessunni í Keflavíkurkirkju þann 16. október kl. 11 verður sérstaklega beðið fyrir heilbrigðisþjónustunni. Eva Björk Valdimarsdóttir prédikar og þjónar ásamt messuþjónum. Organisti er Arnór Vilbergsson og kór Keflavíkurkirkju leiðir sönginn. Eftir messu verður boðið uppá súpu Kirkjulundi. Verið öll hjartanlega velkomin.

By |2017-03-17T22:28:04+00:0014. október 2016 | 12:18|
Go to Top