Tvöþúsund vers í Biblíunni snúast um að hjálpa þeim sem minna mega sín.
Fermingarbörn Keflavíkurkirkju munu ganga í hús í söfnuðinum fimmtudaginn 3. nóvember frá kl. 18 og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Þetta er árleg söfnun fermingarbarna um allt land fyrir vatnsbrunnum í Eþíópíu og Úganda.
Við hvetjum íbúa í Keflavíkursókn til að taka vel á móti fermingarbörnunum sem ávallt hafa staðið sig með vel og safnað upphæðum til þessa verkefnis sem hefur komið sér vel á þeim svæðum þar sem vatnsskortur er viðvarandi vandamál.
Hér er hægt að horfa fræðslu um þetta mikilvæga verkefni https://www.youtube.com/watch?v=fDGVSUhkV4s&feature=youtu.be
„Því hungraður var ég og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég og þér hýstuð mig“ Matt. 25.35