Léttmessa með Arnóri, Elmari og Erlu

Léttmessa með Arnóri, Elmari og Erlu

Sunnudaginn 29. október kl. 11 verður boðið uppá létta morgunmessu. Arnór organisti spilar undir söng Elmars Þórs Haukssonar. Helga Jakobsdóttir og Þórey Eyþórsdóttir eru messuþjónar. Sóknarnefnd og fermingarforeldrar bera fram súpu og brauðið er gefið af Sigurjónsbakarí. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í umsjón Jóhönnu Maríu, Helgu og Jóns Árna. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. Verið öll [...]

By |2017-10-24T12:16:39+00:0024. október 2017 | 10:48|

Bleik guðsþjónusta í Keflavíkurkirkju

Í tilefni af bleikum október fáum við félaga frá Krabbameinsfélagi Suðurnesja til að koma til okkar í sunnudagsmessuna þann 22.október kl.11:00 og fræða okkur um starfsemi félagsins. Að guðsþjónustu lokinni býðst kirkjugestum að kaupa bleiku slaufuna ásamt öðrum vörum sem félagið selur til styrktar starfsemi sinni hér suður með sjó. Kórfélagar og organist munu að [...]

By |2017-10-17T12:37:00+00:0017. október 2017 | 12:37|

Hlúið að andlegri heilsu í helgidómi Keflavíkurkirkju

Í tilefni af heilsu- og forvarnarviku í Reykjanesbæ ætlar Veitingaþjónustan MENU að gefa gæðasúpu fyrir kirkjusamfélag sunnudagsins 8. október kl. 11. Kór Keflavíkurkirkjuer hefur valið sína uppáhalds sálma sem þau flytja í söng undir stjórn Arnórs organista. Stefán Jónsson og Guðrún Hákonardóttir eru messuþjónar. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. Líkt og alla sunnudaga verður brauð í boðið [...]

By |2017-10-04T08:09:47+00:004. október 2017 | 08:09|

Taize messa sunnudaginn 1. okt. kl. 11

Síðasta sunnudag voru systurnar Marta og María til umfjöllunar og næstkomandi sunnudag verða þær enn með okkur. Guðspjallið fjallar einmitt um upprisu Lasarusar, bróður þeirra. Að vanda er messan kl. 11 með söng frá kórfélögum Kórs Keflavíkurkirkju undir stjórn Arnórs organista. Helga JAkobsdóttir er messuþjónn. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. Sunnudagaskólinn er á sama tíma. Systa og leiðtogar [...]

By |2017-10-01T10:20:21+00:0026. september 2017 | 09:13|

Lára og Hafsteinn á ljúfum nótum á sunnudaginn

Sunnudaginn 24. september kl. 11 munu Lára Grétarsdóttir og Hafsteinn Hjartarson leiða söng með ljúfum tónum við messu. Systa. Jóhanna María og Helga hafa umsjón með  sunnudagskólanum sem er á sama tíma. Linda Gunnarsdóttir sinnir messuþjónustu og sr. Erla þjónar. Súpuþjónar og fermingarforeldar reiða fram súpu og brauð sem gefið er af Sigurjónsbakarí

By |2017-09-20T15:06:41+00:0020. september 2017 | 15:06|

Við heilsulindina í Betesda 17. september kl. 11

Sunnudagaskólinn verður með biblíusögu, bæn og kröftugum söng sunnudaginn 17. sept. kl. 11. Jóhanna María, Jón Árni og Helga sjá um barnastundina. Hjónin Ólöf Sveinsdóttir og Kristinn Þór Jakobsson eru messuþjónar og fermingarforeldrar ásamt súpuþjónum bera fram súpu og brauð. Á sama tíma er messa í kirkjuskipinu. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja við undirleik Arnórs [...]

By |2017-09-11T11:07:48+00:0011. september 2017 | 11:07|

Sunnudagaskólinn hefst á ný 10. september kl. 11

Sunnudagaskólinn hefst á ný 10. september kl. 11. Í vetur verður hann sem fyrr í umsjón Systu, Helgu, Jóns Árna og Jóhönnu Maríu. Bænir, biblíusögur, söngur, líf og fjör alla sunnudaga í vetur kl. 11. Á sama tíma eru vikulegar messur þar sem Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Í lokin bjóða fermingarforeldrar uppá súpu [...]

By |2017-09-05T16:34:03+00:005. september 2017 | 16:30|

Kvöldmessa með Vox Felix

Það er gott, gefandi og gaman í messu með Vox Felix. Arnór organisti leiðir þennan ungmennakór í kvöldmessu sunnudagskvöldið 27. ágúst kl. 20. Verðandi fermingarbörn og fjölskyldur eru sérstaklega hvött til að koma en reifað verður á fermingarfræðslu komandi vetur að lokinni messu.

By |2017-08-22T10:30:47+00:0022. ágúst 2017 | 10:30|

Kveðjumessa sr. Evu Bjarkar 20. ágúst kl. 20

Sunnudagskvöldið 20. ágúst kl. 20 verður kveðjumessa sr. Evu Bjarkar sem hefur þjónað söfnuðinum af heilum hug og fallegu hjarta sl. 2 ár. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja henni til heiðurs við undirspil Arnórs organista og Eva Björk mun sjálf predika. Sóknarnefnd og starfsfólk þakkar Evu Björk samfylgdina og biður henni Guðsblessun og hvetur söfnuðinn [...]

By |2017-08-18T16:06:06+00:0018. ágúst 2017 | 15:33|

Kvöldgöngumessa

Sunnudagskvöldið 30. júlí kl. 20 verður kvöldgöngumessa. Við byrjum á kirkjutröppunum og röltum um gamla bæinn. Stoppum fyrir söng, hugleiðingu og fróðleik og endum í spjalli yfir kaffisopa og heimabökuðu á Brunnstíg 3. Arnór og Erla leiða stundina.

By |2017-07-29T09:29:23+00:0029. júlí 2017 | 09:29|
Go to Top