Fréttir

Konudagurinn í Keflavíkurkirkju

Þorrinn er á braut og góan bíður með birtu og vor í lofti. Á konudaginn höldum við taktinum með messu og sunnudagaskóla kl. 11. Guðbrandur Einarsson leiðir kórmeðlimi og kirkjugesti í söng. Mæðgurnar Linda Gunnarsdóttir og Marín Hrund Jónsdóttir eru messuþjónar. Systa og Jón Árni hafa umsjón með sunnudagaskólanum. Erla Guðmundusdóttir þjónar. Í tilefni af konudeginum munu karlaraddir Kórs [...]

By |2016-02-19T08:27:54+00:0019. febrúar 2016 | 08:27|

Hver er þessi Jesús frá Nasaret?

Námskeiðið Biblíusögur fyrir fullorðna heldur áfram í Keflavíkurkirkju og næsta þriðjudagskvöld klukkan 20:00 mætir Haraldur Hreinsson guðfræðingur. Erindi hans heitir Hver er þessi Jesús frá Nasaret? Birtingarmyndir Jesú frá fornöld fram á okkar daga. Haraldur mun bæði fjalla um hinn sögulega Jesú og menningarlegar birtingarmyndir hans í sögunni. Síðast sköpuðust líflegar umræður og vonumst við til þess að sjá [...]

By |2017-03-17T22:29:33+00:0014. febrúar 2016 | 19:09|

Sunnudagurinn 14. febrúar

Öskudagurinn markar upphaf föstunnar þegar við lítum inn á við og undirbúum komu páskanna. Hvort sem við ætlum að gera það með því að halda í við okkur í mat og drykk, netnotkun eða fasta á annan hátt þá er fastan tilvalinn tími til þess að skoða hvað það er í lífi okkar sem hamlar. [...]

By |2017-03-17T22:29:36+00:0011. febrúar 2016 | 13:53|

Hátíðarstundir í Keflavíkurkirkju

Hátíðarguðsþjónustur yfir jól og áramót eru eftirfarandi: Aðfangadagur 24. desember Jólin allstaðar, hátíðar barna- og fjölskyldustund kl. 16:00  Jólaguðspjall sett upp og jólasálmar sungnir. Prestar eru Erla Guðmundsdóttir og Eva Björk Valdimarsdóttir. Messuþjónar eru Ólöf Sveinsdóttir og Jóhanna María Kristinsdóttir. Hátíðarguðsþjónusta kl. 18:00  Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Prestar eru Erla Guðmundsdóttir og Eva [...]

By |2015-12-21T10:05:55+00:0016. desember 2015 | 12:26|

Eldey syngur jólaperlur á aðventukvöldi í Keflavíkurkirkju

Fyrsta sunnudagskvöld í aðventu, kl. 20, mun Eldey syngja jólapelur í Keflavíkurkirkju. Þá syngja kórmeðlimir einnig einsöng og Gunnar Kristjánsson skeiðar af stað í skeiðarspilun. Af mikilli gleði leiðir Arnór organisti þennan kraftmikla kór þorskaðra einstaklinga á Suðurnesjum. Kjartan Már Kjartansson mun gefa okkur góða orð á þessu aðventukvöldi. Hann er einmitt mömmustrákar einnar kórkonu [...]

By |2015-11-27T12:26:12+00:0027. nóvember 2015 | 12:21|

Fjölskyldumessa 25. október kl. 11

Sunnudaginn 25. október kl. 11 verður fjölskyldumessa undir stjórn Arnór organista, Systu og Estherar Elínar sunnudagaskólaleiðtoga. Súpuþjónar reiða fram súpu og brauð, sem gefið er af Sigurjónabakarí. Hægt er að hlusta í gegnum Hljóðbylgju Suðurnesja FM 101.2  

By |2015-10-22T13:49:12+00:0022. október 2015 | 13:48|

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli 27. september kl. 11

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11 sunnudaginn 27. september. Prestur er sr. Eva Björk Valdimarsdóttir. Sunnudagaskólaleiðtogar sjá um barnastundina. Útvarpað verður frá kirkjunni á Hljóðbylgjan á Suðurnesjum FM 101,2 en einnig er hægt að hlusta á skjávarpa símans. Verið velkomin

By |2015-09-23T18:25:24+00:0023. september 2015 | 18:24|

Guðsþjónusta 11. janúar

Guðsþjónusta verður í Keflavíkurkirkju sunnudaginn 11. janúar n.k. kl. 11:00. Sólmundur Friðriksson leikur á gítar og leiðir sönginn. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.

By |2015-01-05T00:07:48+00:005. janúar 2015 | 00:02|

Nýtt námskeið í krílasálmum!

Miðvikudaginn 29. október hefst nýtt námskeið í krílasálmum. Þessi samkoma er mjög gefandi bæði fyrir kornabörnin og foreldrana. Sr. Erla Guðmundsdóttir tekur við skráningum á netfangið erla@keflavikurkirkja.is

By |2014-10-28T09:40:28+00:0028. október 2014 | 09:40|
Go to Top