Fréttir

Vortónleikar

Kór Keflavíkurkirkju heldur vortónleika sína í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 19. maí. Efnisskrá þessara tónleika ber þess merki að kórinn heldur í söngferð til Ítalíu í júní. Aðgangseyrir er einungis kr. 500 og rennur í ferðasjóð kórsins. Verið öll hjartanlega velkomin!

By |2017-03-17T22:28:42+00:0017. maí 2016 | 10:07|

Vortónleikar Vox Felix

Nú er komið að því!  Vortónleikar Vox Felix verða haldnir 17. Maí næstkomandi klukkan 20:00 i í safnaðarheimilinu við Keflavíkurkirkju. Nú verðum við ekki ein því við höfum fengið krakkana úr Skapandi starfi Keflavíkurkirkju til liðs með okkur og munu þessir hæfileikaríku krakkar syngja nokkur lög með okkur. Miðaverð er 2.000 krónur og verða miðar seldir [...]

By |2017-03-17T22:28:46+00:0013. maí 2016 | 15:47|

Fjölskyldumessa á Barnamenningarhátíð

Líf og fjör verður í Kirkjulundi sunnudaginn 8. maí klukkan 11 í tilefni af Barnamenningarhátíð Reykjanesbæjar. Börn verða í aðalhlutverki og mikið fjör. Krakkar úr skapandi starfi kirkjunnar koma fram og brasshópur tónlistarskólanns mun spila nokkur vel valin lög. Eva prestur verður ætlar að tala um mandölur sem eru falleg hringform sem notuð eru í mörgum trúarbrögðum.

By |2017-03-17T22:28:51+00:006. maí 2016 | 12:05|

Á Páskadag, 27. mars verður hátíðarmessa kl 08:00. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista, sr. Erla Guðmundsdóttir og sr. Eva Björk Valdimarsdóttir þjóna. Boðið verður uppá morgunverð að lokinni messu. Útvarpað er á Hljóðbylgjan á Suðurnesjum fm 101.2

By |2017-03-17T22:29:05+00:0026. mars 2016 | 13:03|

Helgihald yfir Páska í Keflavíkurkirkju

Sunnudaginn 20. mars - Pálmasunnudagur Fjölskyldumessa klukkan 11, sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista Fimmtudagurinn  24. mars - Skírdagur Kvöldmessa kl. 20, sr Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Föstudagurinn 25. mars - Föstudagurinn lang Messa klukkan 14, sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir [...]

By |2017-03-17T22:29:10+00:0017. mars 2016 | 19:05|

Boðunardagur Maríu

Sunnudaginn 13. mars minnumst við dagsins sem María frétti þetta allt saman. Að hún myndi fæða í heiminn sjálfan frelsarann. Við veltum fyrir okkur hvernig vestræn menning hefur litið til Maríu og hvort sú mynd sé alltaf jákvæð. Sunnudagaskólinn verður að sjálfsögðu á sínum stað. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista, sr. Eva Björk [...]

By |2017-03-17T22:29:15+00:0010. mars 2016 | 12:07|

Æskulýðsdagurinn 2016

Sunnudaginn 6. mars er Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar. Þann dag verður mikið um söng og gleði í Keflavíkurkirkju. Fjölskylduguðsþjónusta verður kl. 11. Börnin í söng –og leiklistarstarfi kirkjunnar koma fram. Biblíusaga, brúður og mikill söngur. Súpa og brauð í boði. Umsjón hafa sunnudagaskólaleiðtogar, organisti og prestar. Kvöldmessa kl.20. Sönghópurinn Vox Felix syngur undir stjórn organistans. Einnig mun [...]

By |2017-03-17T22:29:18+00:003. mars 2016 | 11:56|

Síðasta kvöldið fellur niður

Því miður verðum við að fella niður síðasta kvöldið í Biblíusögur fyrir fullorðna. Ninna Sif Svavarsdóttir þurfti því miður að boða forföll. Við munum alveg örugglega fá hana til þess að fræða okkur einhvertímann síðar um konurnar í Gamla testamentinu. Við viljum þakka ykkur kærlega fyrir samveruna á námskeiðinu, góða þátttöku og skemmtilegt samtal.

By |2017-03-17T22:29:23+00:001. mars 2016 | 11:06|

Sunnudagurinn 28. febrúar

Sigrum við illt með illu? Ofbeldi með meira ofbeldi? Jesús rekur út illan anda, Beelsebúl, höfðingi illra anda kemur aftur við sögu í guðspjalli dagsins og Jesús þarf að svara því hvernig hann fór að því að reka út andann illa. Barn verður borið til skírnar í messunni. Sunnudagaskólinn verður að sjálfsögðu á sínum stað. Kór [...]

By |2016-02-29T09:36:39+00:0025. febrúar 2016 | 19:01|

Að segja satt!

Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona er næst á námskeiðinu okkar Biblíusögur fyrir fullorðna. Hún er okkur Keflvíkingum að góðu kunn, en hún málaði altarismyndina í Kapellu vonarinnar, Engil vonarinnar. Þriðjudagskvöldið 23. febrúar kl. 20 mun hún ræða um þau verk sín sem hafa verið innblásin af Biblíunni, bæði eldri verk og ný. Erindi hennar ber yfirskriftina Að segja [...]

By |2017-03-17T22:29:29+00:0022. febrúar 2016 | 22:20|
Go to Top