Fréttir

Heilsu- og hamingjuvika

      Mánudagurinn 3. október Bænaganga kl. 18 Bænaganga frá kirkjutröppum. Prestarnir leiða gönguna um elsta hluta Keflavíkur, farið verður með og sungin gömul og ný bænavers. Miðvikudagurinn 5. október Kyrrðarstund kl. 12 Kyrrðarstund í Kapellu vonarinnar. Sr. Erla og Arnór organisti leiða stundina með andlegri næringu og söng. Boðið er uppá matarmikla heilsusúpu [...]

By |2017-03-17T22:28:08+00:0028. september 2016 | 20:34|

Guðsþjónusta sunnudaginn 25. september

Guðsþjónusta í Keflavíkurkirkju kl. 11. Séra Eva Björk Valdimarsdóttir prédikar og þjónar. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organisti er Arnór Vilbergsson. Sunnudagaskólinn hefst á sama tíma og byrjar með okkur inni í kirkjunni kl. 11. Ritningartextar dagsins fjalla um boðorð bæði gömul og ný.

By |2017-03-17T22:28:12+00:0023. september 2016 | 17:26|

Messa og sunnudagaskóli

Næsta sunnudag er messa klukkan 11 og þá fer sunnudagaskólinn líka loksins af stað! Gleði, gleði! Systa, Anna Hulda og Helga sjá um sunnudagaskólann og ný brúða verður kynnt til sögunnar. Séra Eva Björk Valdimarsdóttir prédikar og þjónar ásamt messuþjónum. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Boðið verður uppá súpu og brauð eftir messu!

By |2017-03-17T22:28:16+00:009. september 2016 | 17:54|

Skráning í skapandi starf hafin :D

Söngur, gleði og kraftur!! Skapandi starf í söng og leik fer af stað í Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 27. september. Starfið fer fram í Kirkjulundi á þriðjudögum. Þátttakendur eru börn á aldrinu 8 ára og eldri. Samvera yngri hóps, 2.-5 bekkur verður kl. 18-19 . Samvera eldri hóps, 6. bekkur og eldri, verður kl. 19:30-21. Leiðbeinendur eru [...]

By |2017-03-17T22:28:19+00:005. september 2016 | 18:01|

Ljósasálmar og líkþráir menn

Ljósasálmar verða þema sunnudagsmessunnar, 28. ágúst kl. 11, í Keflavíkurkirkju. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja sálma sem allir segja frá ljósinu í tilefni þess að Ljósanótt er handan við hornið. Arnór organisti leiðir kórinn. Sr. Eva Björk er prestur. Guðspjall dagsins fjallar um tíu líkþráa menn. Verið þið velkomin.

By |2016-08-25T09:38:18+00:0025. ágúst 2016 | 09:38|

Lesmessa á sunnudagskvöldið

Sunnudagskvöldið 17. júlí verður lesmessa í Kapellu vonarinnar klukkan átta. Orðið verður í aðalhlutverki og verður lesið úr nokkrum bókum Biblíunnar sem fjalla um ferðir fólks. Að lokum munum við biðjum fyrir ferðalöngum sumarsins. Verið velkomin.

By |2016-07-14T16:15:01+00:0014. júlí 2016 | 16:15|

Púttmessa

Næsta sunnudag verður Púttmessa klukkan 12:30 á púttvellinum Mánagötu. Hún hefst á helgistund í upphafi, svo er haldið púttmót og að lokum verður kaffi og verðlaunaafhending í Kirkjulundi. Sólmundur Friðriksson sér um tónlistarfluttning í Kirkjulundi, prestur er sr. Eva Björk Valdimarsdóttir. Verið velkomin!

By |2017-03-17T22:28:21+00:009. júlí 2016 | 19:15|

Kvöldmessa 26. júní

Við verðum á ljúfum nótum í Kepellu vonarinnar á sunnudagskvöldið klukkan átta. Elmar Þór Hauksson söngvari leiðir okkur í ljúfum söng, ásamt Arnóri Vilbergssyni organista. Prestur er sr. Eva Björk Valdimarsdóttir og ætlar hún að tala um fyrirgefninguna. Verið velkomin.

By |2017-03-17T22:28:26+00:0023. júní 2016 | 09:11|

Hátíðarguðsþjónusta á 17. júní

Hringt verður til messa kl.12:30 á þjóðhátíðardeginum í Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju. Kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn Arnórs Vilbergssonar og prestur er sr. Eva Björk Valdimarsdóttir. Verið velkomin til kirkjunnar á þessum hátíðisdegi.

By |2017-03-17T22:28:31+00:0016. júní 2016 | 09:31|

Vorferð Keflavíkurkirkju

Þá er komið að árlegri vorferð Keflavíkurkirkju og ætlum við að heimsækja hina sögufrægu Njarðvíkurkirkju, Innri Njarðvík. Við fræðumst um kirkjuna, heyrum Biblíusögu og Systa mætir með gítarinn þannig að það verður eitthvað fyrir alla, unga sem eldri. Eftir stund í kirkjunni verður farið í lautarferð og er fólk hvatt til að koma með nesti [...]

By |2016-05-19T14:08:04+00:0019. maí 2016 | 14:03|
Go to Top