Fréttir

Bubbi Morthens í Keflavíkurkirkju sunnudaginn 8.sept kl.20

Kæru vinir, um leið og við í kirkjunni ykkar óskum öllum yndislegrar ljósanætur hátíðar viljum við bjóða ykkur til guðsþjónustu í Keflavíkurkirkju á sunnudagskvöldi 8.sept kl.20. Sr.Erla og Sr.Fritz Már munu leiða stundina sem markar lok ljósanætur, sérstakur gestur kvöldsins verður Bubbi Morthens sem mun gleðja okkur með tali og tónum. Allir eru velkomnir meðan [...]

By |2019-09-02T09:06:47+00:002. september 2019 | 09:06|

Æðruleysismessa á miðvikudagskvöld kl.20

Kæru vinir, við verðum með fyrstu Æðruleysismessuna Í keflavíkurkirkju eftir frábært sumar næsta miðvikudag þann 4.sept klukkan 20. Æðruleysismessurnar í vetur verða alltaf fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði þannig að það er um að gera að taka þær frá og merkja í dagbókina :) Njótum þess að eiga saman yndissstund í kirkjunni okkar með söng [...]

By |2019-09-02T08:53:02+00:002. september 2019 | 08:53|

Skráning í barna- og unglingasöngstarf hafið

Barna- og unglingasöngstarf Keflavíkurkirkju Keflavíkurkirkja býður uppá vikulegt söngstarf fyrir börn í 2.-5. bekk og 6. bekk og eldri.   Arnór Vilbergsson og Freydís Kneif Kolbeinsdóttir hafa umsjón með söngstarfinu. Starfið fer fram í Kirkjulundi og hefst 16. og 17. september nk. Starfið fer fram á eftirfarandi tímum: • Barnahópur, 2.-5. bekkur        [...]

By |2019-08-30T20:07:50+00:0030. ágúst 2019 | 20:04|

Vox Felix sunnudagskvöldið 1. september kl. 20

Það er gott, gefandi og gaman í messu með Vox Felix. Arnór organisti leiðir þessar fallegu raddir í söng með undirleik sunnudagskvöldið 1. september kl. 20. Fermingarbörn vetrarins og fjölskyldur þeirra eru sérstaklega hvött til að koma. Sr. Fritz Már og sr. Erla þjóna.

By |2019-08-26T21:59:39+00:0026. ágúst 2019 | 21:59|

Kvöldmessa 25. ágúst kl. 20

Sunnudagskvöldið 25. ágúst kl. 20 bjóðum við til kvöldmessu í Keflavíkurkirkju. Arnór organisti leiðir söng og spilar. Sr. Erla flytur hugleiðingu, bæn og blessun. Verið velkomin.

By |2019-08-21T19:27:40+00:0021. ágúst 2019 | 19:27|

Púttmessa 21.júlí kl.13

Hin árlega púttmessa verður sunnudaginn 21. júlí kl.13 á púttvellinum við Mánagötu. Í beinu framhaldi af helgistund hefst púttmótið en verðlaunaafhending fer fram í Kirkjulundi þar sem verður boðið uppá kaffi og meðlæti. Verið velkomin að rækta líkama og sál á sumardegi. Prestur er sr. Fritz Már Jörgensson

By |2019-07-16T08:27:20+00:0016. júlí 2019 | 08:27|

Kvöldgöngumessa 30. júní kl. 20

Helgihaldið okkar er með allt öðrum hætti á sumrin er venjan er yfir vetur. Sunnudagskvöldið 30. júní verður kvöldgöngumessa frá Keflavíkurkirkju. Haldið verður af stað frá kirkjutröppum kl. 20. Hörður Gíslason, kenndur við Sólbakka, mun flytja fróðleik er við stöldrum við á nokkrum stöðum í umhverfi kirkjunnar. Arnór organisti leiðir söng við úgúlelespil. Sr. Erla [...]

By |2019-06-24T11:13:25+00:0024. júní 2019 | 11:08|

Hvítasunnudagur 9.júní

Á Hvítasunnudag 9. júní verður messa í Keflavíkurkirkju kl.11. Sr.Fritz Már Jörgensson þjónar fyrir altari. Rafn Hlíðberg Björgvinsson leiðir okkur áfram í söng. Allir innilega velkomnir.

By |2019-06-05T15:31:46+00:005. júní 2019 | 09:16|

Sjómannadagur 2.júní

Kæru vinir, á sjómannadag er messa í Duus húsum kl.11 sr.Fritz Már þjónar, Arnór Vilbergsson organisti og kór Keflavíkurkirkju leiða söng og tónlist, við verðum með skírn í messunni og hlökkum mikið til þess. Eftir stundina verður lagður blómakrans við minnismerki sjómanna á Bakkalág við Hafnargötu. Kl.14.15 verður messa á Hrafnistu Nesvöllum og kl.15 á Hlévangi. [...]

By |2019-05-30T18:15:15+00:0030. maí 2019 | 18:15|

Uppstigningardagur kl. 14

Fimmtudagurinn 30. maí er uppstigningardagur. Það var í tíð hr. Péturs Sigurgeirssonar biskups Íslands, að ákveðið var að tileinka öldruðum daginn. Víða er því öldruðum sérstaklega boðað til helgihalds á þessum degi. Í Keflavíkurkirkju verður guðsþjónusta kl. 14. Eldey, kór eldri borgara á Suðurnesjum, syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Sr. Erla Guðmundsdottir þjónar. Boðið verður upp á [...]

By |2019-05-27T07:03:46+00:0027. maí 2019 | 07:03|
Go to Top