Sunnudagurinn 1. mars í Keflavíkurkirkju beinir sjónum sínum að börnum, unglingum og umhverfinu
Kl. 11 – Fjölskyldumessa. Regnbogaraddir Keflavíkurkirkju koma fram í söng undir stjórn Arnórs organista og Freydísar Kneifar. Söngur biblíusaga, bænir og tveir Rebbar koma í heimsókn. Súpa og Sigurjónsbrauð í boði eftir messu. Frjáls framlög í baukinn renna til verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar til styrktar byggingu steinhúsa fyrir munaðarlaus börn í Úganda. Sr. Fritz Már og sr. Erla leiða messuna með þátttöku sunnudagaskólaleiðtoganna Helgu og Inga Þórs.
Kl. 16 – Kaffihúsasmessa. Ungmennakórinn Vox Felix syngur undir stjórn Arnórs organista. Fermingarbörn syngja með Vox Felix ásamt lesa texta og flytja bænir sem leggja áherslu á umhverfisvitund. Undir messunni verður boðið uppá kaffihús í Kirkjulundi. Kaffi, djús og kleinur á 500 kr. Ágóði rennur í verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar til styrktar byggingu steinhúsa fyrir munaðarlaus börn í Úganda. Sr. Fritz Már og sr. Erla leiða messuna.