Á Páskadag, 27. mars verður hátíðarmessa kl 08:00. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista, sr. Erla Guðmundsdóttir og sr. Eva Björk Valdimarsdóttir þjóna. Boðið verður uppá morgunverð að lokinni messu. Útvarpað er á Hljóðbylgjan á Suðurnesjum fm 101.2
Helgihald yfir Páska í Keflavíkurkirkju
Sunnudaginn 20. mars - Pálmasunnudagur Fjölskyldumessa klukkan 11, sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista Fimmtudagurinn 24. mars - Skírdagur Kvöldmessa kl. 20, sr Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Föstudagurinn 25. mars - Föstudagurinn lang Messa klukkan 14, sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir [...]
Boðunardagur Maríu
Sunnudaginn 13. mars minnumst við dagsins sem María frétti þetta allt saman. Að hún myndi fæða í heiminn sjálfan frelsarann. Við veltum fyrir okkur hvernig vestræn menning hefur litið til Maríu og hvort sú mynd sé alltaf jákvæð. Sunnudagaskólinn verður að sjálfsögðu á sínum stað. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista, sr. Eva Björk [...]
Æskulýðsdagurinn 2016
Sunnudaginn 6. mars er Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar. Þann dag verður mikið um söng og gleði í Keflavíkurkirkju. Fjölskylduguðsþjónusta verður kl. 11. Börnin í söng –og leiklistarstarfi kirkjunnar koma fram. Biblíusaga, brúður og mikill söngur. Súpa og brauð í boði. Umsjón hafa sunnudagaskólaleiðtogar, organisti og prestar. Kvöldmessa kl.20. Sönghópurinn Vox Felix syngur undir stjórn organistans. Einnig mun [...]
Síðasta kvöldið fellur niður
Því miður verðum við að fella niður síðasta kvöldið í Biblíusögur fyrir fullorðna. Ninna Sif Svavarsdóttir þurfti því miður að boða forföll. Við munum alveg örugglega fá hana til þess að fræða okkur einhvertímann síðar um konurnar í Gamla testamentinu. Við viljum þakka ykkur kærlega fyrir samveruna á námskeiðinu, góða þátttöku og skemmtilegt samtal.
Sunnudagurinn 28. febrúar
Sigrum við illt með illu? Ofbeldi með meira ofbeldi? Jesús rekur út illan anda, Beelsebúl, höfðingi illra anda kemur aftur við sögu í guðspjalli dagsins og Jesús þarf að svara því hvernig hann fór að því að reka út andann illa. Barn verður borið til skírnar í messunni. Sunnudagaskólinn verður að sjálfsögðu á sínum stað. Kór [...]
Að segja satt!
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona er næst á námskeiðinu okkar Biblíusögur fyrir fullorðna. Hún er okkur Keflvíkingum að góðu kunn, en hún málaði altarismyndina í Kapellu vonarinnar, Engil vonarinnar. Þriðjudagskvöldið 23. febrúar kl. 20 mun hún ræða um þau verk sín sem hafa verið innblásin af Biblíunni, bæði eldri verk og ný. Erindi hennar ber yfirskriftina Að segja [...]
Konudagurinn í Keflavíkurkirkju
Þorrinn er á braut og góan bíður með birtu og vor í lofti. Á konudaginn höldum við taktinum með messu og sunnudagaskóla kl. 11. Guðbrandur Einarsson leiðir kórmeðlimi og kirkjugesti í söng. Mæðgurnar Linda Gunnarsdóttir og Marín Hrund Jónsdóttir eru messuþjónar. Systa og Jón Árni hafa umsjón með sunnudagaskólanum. Erla Guðmundusdóttir þjónar. Í tilefni af konudeginum munu karlaraddir Kórs [...]
Hver er þessi Jesús frá Nasaret?
Námskeiðið Biblíusögur fyrir fullorðna heldur áfram í Keflavíkurkirkju og næsta þriðjudagskvöld klukkan 20:00 mætir Haraldur Hreinsson guðfræðingur. Erindi hans heitir Hver er þessi Jesús frá Nasaret? Birtingarmyndir Jesú frá fornöld fram á okkar daga. Haraldur mun bæði fjalla um hinn sögulega Jesú og menningarlegar birtingarmyndir hans í sögunni. Síðast sköpuðust líflegar umræður og vonumst við til þess að sjá [...]
Sunnudagurinn 14. febrúar
Öskudagurinn markar upphaf föstunnar þegar við lítum inn á við og undirbúum komu páskanna. Hvort sem við ætlum að gera það með því að halda í við okkur í mat og drykk, netnotkun eða fasta á annan hátt þá er fastan tilvalinn tími til þess að skoða hvað það er í lífi okkar sem hamlar. [...]