Barna- og unglingakóræfingar hefjast á ný

Barna- og unglingakóræfingar hefjast á ný

Keflavíkurkirkja býður upp á vikulegt kórastarf fyrir börn í 2. - 5. bekk og 6. bekk og eldri. Arnór Vilbergsson og Freydis Kneif Kolbeinsdóttir hafa umsjón með starfinu. Kórgjald er 5000 kr. fyrir vorönn. Starfið fer fram í Kirkjulundi (gengið inn að framan) og hefst 14. og 15. janúar nk. Starfið fer fram á eftirfarandi [...]

By |2019-01-07T15:48:50+00:007. janúar 2019 | 15:41|

Nú mega jólin koma fyrir mér..

Sunnudagurinn 16. des. kl. 11:00. Nú mega jólin koma fyrir mér. Guðsþjónusta í keflavíkurkirkju, við syngjum saman jólalögin og heyrum guðsorð. Arnór Vilbergsson organist leiðir okkur í söng. Sr.Fritz Már Jörgensson þjónar ásamt messuþjónum. Njótum saman yndislegrar stundar með söng og gleði á aðventunni.

By |2018-12-10T10:39:07+00:0010. desember 2018 | 10:39|

Fyrsti sunnudagur í aðventu

Á sunnudaginn er fyrsti sunnudagur í aðventu, við byrjum kl.11 um morguninn með ljósamessu þar sem fermingarbörn ásamt barna og unglingakór kirkjunnar eru í aðalhlutverki og að sjálfsögðu kveikjum við á fyrsta aðventukertinu. Sr. Fritz Már þjónar ásamt messuþjónum og Arnór stjórnar tónlistinni af sinni alkunnu snilld. Eftir guðsþjónustu njótum við samfélags í Kirkjulundi og bjóða [...]

By |2018-11-26T11:25:33+00:0026. nóvember 2018 | 11:25|

Úgúlelemessa síðasta sunnudag kirkjuársins

Á þessum síðasta sunnudegi kirkjuársins, 25. nóvember kl. 11, verður að vanda sunnudagaskóli en messan verður þó með öðrum hætti en vanalega. Arnór organisti ætlar að geyma orgelskóna en draga fram úgúlele og leika undir söng Kórs Keflavíkurkirkju með því einfalda en einstaka hljóðfæri. Systa, Helga og Jóhanna hafa umsjón með sunnudagaskólanum. Súpa og brauð [...]

By |2018-11-20T09:29:46+00:0020. nóvember 2018 | 09:28|

Eide messa og sunnudagaskóli

Á sunnudag kl.11 er Eide messa í Keflavíkurkirkju, Sindre Eide er norskur prestur, sem unnið hefur stórvirki í að kynna trúartónlist fjarlægra þjóða með ólíkum hryn og sveiflu og laga að lútersku helgihaldi. Kikjukórinn okkar og Arnór organisti munu leiða okkur í söng og tónlist eftir Eide. Sr.Fritz Már þjónar á ásamt messuþjónum. Sunnudagaskólinn verður á [...]

By |2018-11-14T08:24:42+00:0014. nóvember 2018 | 08:24|

11.11. kl. 11 Kristniboðsdagurinn

Sunnudagur 11. nóvember kl. 11 býður uppá messu í Keflavíkurkirkju á Kristniboðsdegi í kærleiksþjónustu. Kór Keflavíkurkirkju syngur við gítarleik Sigurðar Smára Hanssonar. Helga Jakobsdóttir og Þórey Eyþórsdóttir eru messuþjónar. Sunnudagaskólinn með söng, biblíusögu og bæn er í höndum og hjarta Helgu, Unnar og Skúla Freys. Prestakallinn ásamt fermingarmæðrunum Guðný Ósk og Dröfn reiða fram súpu [...]

By |2018-11-07T20:34:42+00:007. nóvember 2018 | 20:34|

Söfnunarkvöld fermingarbarna 5. nóvember

Kæri Keflavíkursöfnuður   Fermingarbörn Keflavíkurkirkju munu ganga í hús í söfnuðinum í kvöld, 5. nóvember frá kl. 17:30, og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Þetta er árleg söfnun fermingarbarna um allt land fyrir vatnsbrunnum í Eþíópíu og Úganda.   Við hvetjum íbúa í Keflavíkursókn til að taka vel á móti fermingarbörnunum sem ávallt hafa staðið [...]

By |2018-11-05T12:46:18+00:005. nóvember 2018 | 12:45|

Hvítatasunnusamkoma og Allra heilagra messa.

Það er nóg að gera í kirkjunni á sunnudag þ.4 nóvember. Kl.11 er messa og sunnudagaskóli, gestir okkar í messunni koma frá Hvítasunnukirkjunni í Keflavík og mun forstöðumaður safnaðarins Kristinn Ásgrímsson leiða stundina ásamt sr.Fritz Má. Að venju býður sóknarnefnd upp á súpu sem borin er fram af fermingarforeldrum í kirkjulundi eftir stundina. Kl.20 um [...]

By |2018-10-31T07:37:21+00:0031. október 2018 | 07:36|

KFUM&KFUK messa 28. október kl. 11

Sérstök KFUM&KFUK messa verður sunnnudaginn 28. október kl. 11. Félagar og leiðtogar í KFUM og KFUK á Suðurnesjum taka virkan þátt í messunni. Þá mun Karlakór KFUM heiðrar okkur með nærveru sinni og söng undir stjórn Laufeyjar Geirlaugsdóttur. Linda Gunnarsdóttir er messuþjónn. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. Albert Hinriksson býr til súpu og reiðir fram með [...]

By |2018-10-25T08:05:56+00:0023. október 2018 | 13:39|

Fjölskylduguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju 21.október

Sunnudaginn 21.október kl.11, verður fjölskylduþjónusta í Keflavíkurkirkju, við verðum með fullt af skemmtilegu, sr.Fritz Már þjónar ásamt messuþjónum og fermingarbörnum. Njótum saman skemmtilegrar stundar með söng og gleði. Að stundinni lokinni reiða foreldrar fermingarbarna fram dásemdarsúpu í kirkjulundi í boði sóknarnefndar. Jón okkar Ísleifsson kemur með brauð sem Sigurjónasbakarí gefur að venju. Hlökkum til að sjá [...]

By |2018-10-16T14:24:20+00:0016. október 2018 | 14:23|
Go to Top