Jólaball Kefavíkurkirkju verður haldið sunnudaginn 13. desember kl. 11.

Við byrjum í kirkjuskipinu og færum okkur síðan í Kirkjulund þar sem félagar úr Kór Keflavíkurkirkju munu sjá um taktinn í kringum jólatréð. Þá munu skeggjaðir sveinar vitja okkar með hollt og gott í poka.

Heitt á könnunni og piparkökur í boði.

Verið öll velkomin