Umhyggja, gleði og kraftur

Kveðjumessa sr. Evu Bjarkar 20. ágúst kl. 20

Sunnudagskvöldið 20. ágúst kl. 20 verður kveðjumessa sr. Evu Bjarkar sem hefur þjónað söfnuðinum af heilum hug og fallegu hjarta sl. 2 ár. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja henni til heiðurs við undirspil Arnórs organista og Eva Björk mun sjálf predika. Sóknarnefnd og starfsfólk þakkar Evu Björk samfylgdina og biður henni Guðsblessun og hvetur söfnuðinn [...]

By |2017-08-18T16:06:06+00:0018. ágúst 2017 | 15:33|

Kvöldgöngumessa

Sunnudagskvöldið 30. júlí kl. 20 verður kvöldgöngumessa. Við byrjum á kirkjutröppunum og röltum um gamla bæinn. Stoppum fyrir söng, hugleiðingu og fróðleik og endum í spjalli yfir kaffisopa og heimabökuðu á Brunnstíg 3. Arnór og Erla leiða stundina.

By |2017-07-29T09:29:23+00:0029. júlí 2017 | 09:29|

Kvöldmessa með Vox Felix

Köldmessa í Keflavíkurkirkju sunnudaginn 28. maí kl. 20. Við ætlum að vera á hugljúfum og léttum nótum með Vox Felix félögum. Arnór og Erla leiða stundina í söngvum, bænum og biblíufrásögn

By |2017-05-28T13:50:31+00:0028. maí 2017 | 13:50|

Heiðarskólabörn fermd 30. apríl kl. 11

Sunnudaginn 30. apríl kl. 11 verða Heiðarskólabörn verða fermd af prestunum Erlu og Evu Björk. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista og messuþjónar eru Helga Jakobsdóttir og Þórunn Þórisdóttir.

By |2017-04-26T22:39:14+00:0026. apríl 2017 | 22:39|

Fermingar hefjast með Myllubakkaskólabörnum

Sunnudaginn 23. apríl kl. 11 verður fyrsta fermingarmessan í Keflavíkurkirkju vorið 2017. Myllubakkaskólabörn verða fermd af sr. Erlu Guðmundsdóttur. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista og messuþjónar eru mægurnar Linda Gunnarsdóttir og Marín Hrund Jónsdóttir.

By |2017-04-21T21:59:51+00:0021. apríl 2017 | 21:59|

Sumardagurinn fyrsti með Heiðabúum

Sumardagurinn fyrsti er ekki kirkjulegur helgidagur en þó birtingarmynd af trúar- og vonardegi sem sýnir okkur staðfestu þjóðarinnar er við segjum að sumarið sé komið sama hvernig viðrar. Þennan dag verður haldið í skrúðgöngu frá skátaheimili Heiðabúa að Keflavíkurkirkju kl. 12:30. Sú fallega hefð að halda árlega skátamessu með Heiðabúum á sumardaginn fyrsta á sér [...]

By |2017-04-20T11:22:53+00:0018. apríl 2017 | 14:24|

Dymbilvika og páskahátíð í Keflavíkurkirkju

        Að vanda er fjölbreytt dagskrá í Keflavíkurkirkju yfir bænadaga og hátíðarnar. Kór Keflavíkurkirkju, organisti, messuþjónar, sunnudagaskólaleiðtogar og prestarnir þjóna og halda utan um helgihald og stundir. Dymbilvika og páskar Pálmasunnudagur              kl. 11:00         Fjölskyldumessa Skírdagskvöld                      kl. 20:00       Taisemessa og altarisganga Föstudagurinn langi           kl. 14:00        Messa Páskadagur                          kl. 09:00       Hátíðarmessa og morgunverður Annar í [...]

By |2017-04-07T12:08:09+00:004. apríl 2017 | 09:59|

Blá kirkja á bláum degi

Keflavíkurkirkja hefur verið upplýst bláum lit í marsmánuði. Sunnudagurinn 2. apríl er boðunardagur Maríu Guðsmóður og blái liturinn er einmitt hennar litur. Þann dag kl. 11 verður að venju messa. Organistinn ætlar að fanga 60 árum föður síns erlendis. Sólmundur Friðriksson mun spila og leiða söng með sinni ljúfu röddu. Sjálfur hefur hann samið sálm [...]

By |2017-03-29T22:45:26+00:0029. mars 2017 | 22:45|

Bartíumeus blindi, sunnudagakóli, söngur og súpa

Er tilgangur kraftaverkasögu sé að fá þig að trúa einhverjum yfirnáttúrulegum atburði? Sagan af Bartíumeusi blinda kallar án efa eftir svari við þessari spurningu. Það er einmitt guðspjall nk. sunnudags. Þar sem organisti og kórfélagar verða í æfingabúðum í Skálholti munu hjónaleysin Hafsteinn Hjartarson og Lára Björg Grétarsdóttir syngja og spila í kirkjunni. Sr. Erla Guðmundsdóttir [...]

By |2017-03-07T08:49:12+00:007. mars 2017 | 08:48|
Go to Top