Umhyggja, gleði og kraftur

Skátamessa á sumardaginn fyrsta

Sumardagurinn fyrsti er ekki kirkjulegur helgidagur en þó birtingarmynd af trúar- og vonardegi sem sýnir okkur staðfestu þjóðarinnar er við segjum að sumarið sé komið sama hvernig viðrar. Þennan dag verður haldið í skrúðgöngu frá skátaheimili Heiðabúa að Keflavíkurkirkju kl. 12:30 og í framhaldi hefst skátamessa með Heiðabúum sem á sér langa sögu í Keflavíkurkirkju [...]

By |2018-04-17T12:20:28+00:0017. apríl 2018 | 11:27|

Heiðarskólabörn í hátíðarmessu

Annar sunnudagur með fermingarathöfnum í Keflavíkurkirkju verður 15. apríl kl. 11 og 14. Heiðarskólabörn verða fermd af sr. Fritz og sr. Erlu við hátíðarmessu. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Messuþjónar við athafnirnar verða Stefán Jónsson og Guðrún Hákonardóttir, Helga Jakobsdóttir og Linda Gunnarsdóttir.

By |2018-04-08T19:42:25+00:008. apríl 2018 | 19:42|

Fermingar hefjast með Holtaskólabörnum

Fyrsti sunnudagur með fermingarathöfnum verður 8. apríl kl. 11 og 14. Holtaskólabörn verða fermd af sr. Fritz og sr. Erlu við hátíðarmessu. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Messuþjónar við athafnirnar verða Linda Gunnarsdóttir, Helga Jakobsdóttir, Ólöf Sveinsdóttir og Kristinn Þór Jakobsson.

By |2018-04-02T19:54:02+00:002. apríl 2018 | 19:54|

Dymbilvika og páskahátíð í Keflavíkurkirkju

Skírdagskvöld 29. mars kl. 20 Fyrir öldum og árþúsundum settust vinir við borð og snæddu saman merkrilegar máltíðar sem við minnumst er við göngum til altaris að kvöldi skírdags undir taisesálmasöng. Við lok messunnar verður altarið afskrýtt og á það lagðar 5 rósir sem tákn um sármerki Krists.   Föstudagurinn langi 30. mars kl. 14 [...]

By |2018-03-26T20:57:27+00:0026. mars 2018 | 20:55|

Boðunardagur Maríu 18. mars kl. 11

Sunnudagur 18. mars kl. 11 Keflavíkurkirkja hefur verið upplýst bláum lit í marsmánuði. Sunnudagurinn 18. mars boðunardagur Maríu Guðsmóður og blái liturinn er einmitt hennar litur. Við komum saman og minnumst dagsins sem María fékk fregnirnar að hún myndi fæða í heiminn sjálfan frelsarann. Við veltum fyrir okkur hvernig vestræn menning hefur litið til Maríu og hvort [...]

By |2018-03-11T18:13:25+00:0011. mars 2018 | 18:05|

Tvær messur og kaffihús í Kirkjulundi

Sunnudagurinn 11. mars í Keflavíkurkirkju Kl. 11 - Barna- og fjölskyldumessa. Þátttakendur í Skapandi starfi koma fram í söng. Arnór organisti spilar og leiðir söng. Fermingarbörn taka þátt með lestrum á bænum. Súpa og brauð í boði eftir messu. Frjáls framlög í baukinn renna til verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar til styrktar byggingu steinhúsa fyrir munaðarlaus börn í [...]

By |2018-03-06T13:35:37+00:006. mars 2018 | 13:35|

Minningarmessu sem var frestað vegna veðurs verður sunnudainn 25. feb. kl. 11

Vegna veðurs var minningarmessu, sem áður var auglýst frestað. Komandi sunnudag verður því guðsþjónustan kl.11 helguð von í minningu þeim örlagaríka sjóslyssdegi 8. janúar 1988 er Bergþór KE5 sökk. Tveir úr áhöfninni fórust en þrír björguðust. Í nærveru aðstandenda, áhafnarmeðlima er komust af og kirkjugesta verður sagan sögð af Bylgju Dís Gunnarsdóttur sem einnig mun flytja einsöng.  Kórfélagar [...]

By |2018-02-19T10:46:50+00:0019. febrúar 2018 | 10:34|

Minningarmessu frestað

Vegna slæmrar veðurspár er messunni, sem átti að vera til minningar um sjóslysið er Bergþór KE5 fórst 8. janúar 1988, frestað um óákveðinn tíma. En verið velkomin að sækja helgistund og sunnudagaskóla kl. 11 í Keflavíkurkirkju

By |2018-02-11T10:27:23+00:0011. febrúar 2018 | 10:27|

Í minningu – sunnudaginn 11. febrúar. kl. 11

Kristin trú gerði akkerið að vonarinnar tákni. Sunnudagsguðsþjónustan, kl.11, verður helguð von í minningu þeim örlagaríka sjóslyssdegi 8. janúar 1988 er Bergþór KE5 sökk. Tveir úr áhöfninni fórust en þrír björguðust. Í nærveru aðstandenda, áhafnarmeðlima er komust af og kirkjugesta verður sagan sögð af Bylgju Dís Gunnarsdóttur sem einnig mun flytja einsöng.  Kórfélagar syngja undir stjórn Arnórs organista. [...]

By |2018-02-05T10:56:02+00:005. febrúar 2018 | 10:56|

Jesús stillir storminn – á sunnudaginn

Guðspjall sunnudagsins 28. janúar fjallar um er Jesús hastaði á vind og vatn er hlýddu honum. Að venju erum við með messuna kl. 11 í Keflavíkurkirkju og líkt og alla sunnudaga koma margir að helgihaldinu. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Arnórs organista. Stefán Jónsson og Guðrún Hákonardóttir eru messuþjónar. Sigurjónsbrauð og súpa verða [...]

By |2018-01-22T21:30:01+00:0022. janúar 2018 | 21:28|
Go to Top