Kristin trú gerði akkerið að vonarinnar tákni. Sunnudagsguðsþjónustan, kl.11, verður helguð von í minningu þeim örlagaríka sjóslyssdegi 8. janúar 1988 er Bergþór KE5 sökk. Tveir úr áhöfninni fórust en þrír björguðust. Í nærveru aðstandenda, áhafnarmeðlima er komust af og kirkjugesta verður sagan sögð af Bylgju Dís Gunnarsdóttur sem einnig mun flytja einsöng.  Kórfélagar syngja undir stjórn Arnórs organista. Sunnudagaskóli verður á sínum stað á sama tíma. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. Messu- og súpuþjónar ásamt  fermingarforeldrum sinna mikilvægri þjónustu. Verið öll velkomin að þiggja súpu og Sigurjónsbrauð í lokin.