Skírdagskvöld 29. mars kl. 20
Fyrir öldum og árþúsundum settust vinir við borð og snæddu saman merkrilegar máltíðar sem við minnumst er við göngum til altaris að kvöldi skírdags undir taisesálmasöng. Við lok messunnar verður altarið afskrýtt og á það lagðar 5 rósir sem tákn um sármerki Krists.

 

Föstudagurinn langi 30. mars kl. 14
„Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?“ eru orð Jesú á krossinum og orð dagsins sem helgaður er þeim sorglega atburði þegar mennirnir tóku Jesú höndum, húðstrýktu, hæddust að og hengdu upp á kross. Í messu dagsinar hugleiðum við dökkar hliðar lífsins er píslarsagan verður reifðuð.

 

Páskadagur 1. apríl kl. 09
Kirkjan kallar til hátíðarmessu árla dags til að minnast morgunsstundar endur fyrir löngu og þeirrar fregnar sem þá var flutt og enn vekur von og gleði um heimsbyggðina alla. Kristur er upprisinn! Páskarnir eru sigurhátíð lífsins og við fögnum þeirri gjöf sem okkur hefur öllum hlotnast – hlutdeild í eilífðinni. Boðið verður uppá morgunbrauð og sérbökuð ásamt rjúkandi kaffi að lokinni stund.

 

Annar í páskum 2. apríl kl. 11
Í upphafi gleðidaga verður sunnudagaskóli með biblíusögustund, söng og páskaeggjaleit. Systa, Helga og Erla bjóða börn og fjölskyldur velkomin í helgidóminn til gleðistundar.

Við allar athafnir dymbilviku og páskahátíðar þjóna messuþjónar, Kór Keflavíkurkirkju, organistinn og prestarnir