Rótarýmessa á Biblíudegi í Keflavíkurkirkju
Biblíudagurinn er sérstaklega helgaður bókinni sem breytir heiminum. Hann er sunnudaginn 24. feb og þá kl. 11 verður árleg Rótarýmessa Keflavíkurkirkju. Félagi Rótarýklúbbs Keflavíkur og menningarverðlaunahafi Reykjanesbæjar, listakonan Sossa, flytur hugleiðingu um hvernig hún sótti myndefni í bíblíumyndir er hún hélt sýningu á þeim verkum í Kirkjulundi haustið 2007. Í kjölfar veitti hún Keflavíkurkirkju að [...]