Messur

Dagskráin á aðventunni

Mikið er að vanda um að vera á aðventunni í Keflavíkurkirkju. Hér fylgir dagskráin og þar er einnig tilgreint hvaða hópar messuþjóna eru að störfum í hvert skipti. Sr. Erla Guðmundsdóttir leiðir barnastarfið og Arnór Vilbergsson er við hljóðfærið. SBI=Sigfús B. Ingvason, SSÓ=Skúli S. Ólafsson 30. nóv. kl. 11:00 Guðsþjónusta og barnastarf SBI Hópur B [...]

By |2014-11-28T14:02:26+00:0028. nóvember 2014 | 14:02|

Fyrsti sunnudagur í aðventu

Nóg er um að vera í Keflavíkurkirkju, fyrsta sunnudag í aðventu. Kl. 11:00 er guðsþjónusta í kirkjunni. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju leiða sönginn undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Barnastarfið er á sínum stað undir stjórn sr. Erlu Guðmundsdóttur, Systu, Esther og Önnu Huldu. Messuþjónar lesa texta og sjálfboðaliðar bera fram veitingar að messu lokinni. Prestur er [...]

By |2014-11-24T15:23:29+00:0024. nóvember 2014 | 15:23|

Allra heilagra messa í samstarfi við HSS

Starfsfólk á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja tekur þátt í allra heilagra messu í Keflavíkurkirkju kl. 14:00. Þar minnumst við látinna ástvina og hugleiðum lífið og endimörk þess. Kór Keflavíkurkirkju flytur verk úr þekktum sálumessum og að messunni lokinni býður starfsfólkið til samsætis í safnaðarheimilinu. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.

By |2014-10-28T09:37:06+00:0028. október 2014 | 09:37|

Þrjár guðsþjónustur sunnudaginn, 2. nóvember

Sunnudaginn 2. nóvember eru þrjár messur á dagskrá í Keflavíkurkirkju. Kl. 11:00 er guðsþjónusta og barnastarf að vanda. Arnór Vilbergsson er við orgelið, Sr. Erla Guðmundsdóttir, Systa, Esther og Anna Hulda stýra barnastarfinu. Messuþjónar lesa texta. Sjálfboðaliðar bera fram krásir að messu lokinni. Prestur er sr. Sigfús B. Ingvason. Sérstök athygli er vakin á allra [...]

By |2014-10-28T09:20:05+00:0028. október 2014 | 09:20|

Bleik messa 26. október

Sunnudaginn 26. október kl. 20:00 er bleik messa í Keflavíkurkirkju í samstarfi við Krabbameinsfélag Suðurnesja. Guðmundur Björnsson segir frá starfseminni, Anna Lóa Ólafsdóttir og Sigríður Jóna Jónsdóttir lesa ritningartexta og ræðumaður verður Sigurbjört Kristjánsdóttir. Seríurnar sjá um söng og leik ásamt Arnóri Vilbergssyni sem er við hljóðfærið. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Tilefnið er vitaskuld [...]

By |2014-10-19T22:06:31+00:0019. október 2014 | 22:04|

Tvær guðsþjónustur sunnudaginn 26. október

Sunnudaginn 26. október eru tvær guðsþjónustur. Sú fyrri er að vanda kl. 11:00. Barnastarf fer fram á sama tíma í umsjón sr. Erlu Guðmundsdóttur, Systu, Esther og Önnu Huldu. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju leiða sönginn undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Messuþjónar lesa texta og sjálfboðaliðar reiða fram veitingar að messu lokinni. Prestur er sr. Skúli S. [...]

By |2014-10-19T22:09:21+00:0019. október 2014 | 22:01|

Fjölskylduguðsþjónusta 19. október kl. 11:00

Sunnudaginn 19. október kl. 11:00 er fjölskylduguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju. Sr. Sigfús B. Ingvason leiðir stundina ásamt þeim Fríðu og Smára úr Klassart. Messuþjónar taka þátt og sjálfboðaliðar bera fram veitingar!

By |2014-10-15T09:44:27+00:0014. október 2014 | 13:35|

Harmónikkumessa sunnudaginn 12. október

Sunnudaginn 12. október kl. 11:00 fáum við góða gesti í kirkjuna okkar. Harmónikkufélag Suðurnesja leikur þar undir í guðsþjónustunni og má því gera ráð fyrir hressilegum polkatakti við sálmasönginn. Ekki er það nú leiðinlegt! Barnastarfið er á sínum stað í umsjón sr. Erlu, Systu, Önnu Huldu og Esther. Messuþjónar lesa texta og okkar frábæru súpuþjónar [...]

By |2014-10-07T14:49:53+00:007. október 2014 | 14:15|

Tvær messur, sunnudaginn 5. október

Mikið er um dýrðir þessa dagana í Keflavíkurkirkju. Síðasta sunnudag var fullt út að dyrum í barnastarfinu og hvert sæti skipað í hádegissúpunni! Svona viljum við hafa þetta. Næstkomandi sunnudag, 5. október eru tvær messur í kirkjunni. Kl. 11:00 er guðsþjónusta og barnastarf. Sr. Erla Guðmundsdóttir, Systa, Esther og Anna Hulda stýra barnastarfinu. Arnór Vilbergsson [...]

By |2014-09-29T11:11:03+00:0029. september 2014 | 11:11|

Guðsþjónusta, barnastarf og dýrindis súpa

Sunnudagin 28. september kl. 11:00 er guðsþjónusta og barnastarf í Keflavíkurkirkju. Arnór Vilbergsson situr við hljóðfærið og leiðir sönginn. Sr. Erla Guðmundsdóttir stýrir barnastarfi ásamt Systu, Esther og Önnu Huldu. Messuþjónar lesa texta og súpuþjónar bjóða fram veitingar! Prestur er sr. Sigfús B. Ingvason.

By |2014-09-22T10:11:41+00:0022. september 2014 | 10:06|
Go to Top