Messur

Guðsþjónusta og barnastarf 8. febrúar

Sunnudaginn 8. febrúar kl. 11:00 er guðsþjónusta og barnastarf í Keflavíkurkirkju. Arnór Vilbergsson er við hljóðfærið og leiðir sönginn með félögum úr Kór Keflavíkurkirkju. Sr. Erla Guðmundsdóttir, Systa Act, Anna Hulda og Esther stýra barnastarfinu. Messuþjónar lesa og sjálfboðaliðar bera fram sunnudagskrás að messu lokinni. Prestur er sr. Sigfús B. Ingvason, nýkominn frá Austurlöndum Fjær [...]

By |2015-02-03T16:59:08+00:003. febrúar 2015 | 16:58|

Guðsþjónusta og barnastarf 1. febrúar

Sunnudaginn 1. febrúar kl. 11:00 er guðsþjónusta og barnastarf í Keflavíkurkirkju. Arnór Vilbergsson er við hljóðfærið og félagar úr Kór Keflavíkurkirkju leiða sönginn. Baranstarfið er í öruggum höndum sr. Erlu Guðmundsdóttur, Systu, Estherarar og Önnu Huldu. Messuþjónar lesa texta og sjálfboðaliðar bera fram veitingar að athöfn lokinni. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.

By |2015-01-27T11:41:15+00:0027. janúar 2015 | 11:40|

Útvarpsguðsþjónusta sunnudaginn 25. janúar kl. 11

Útvarpsguðsþjónusta  og barnastarf  í Keflavíkurkirkju. Sr. Erla Guðmundsdóttir, Systa, Esther og Anna Hulda leiða barnastarfið. Arnór Vilbergsson leikur á orgelið og leiðir söng Kórs Keflavíkurkirkju. Sjálfboðaliðar bera fram veitingar eftir messu og messuþjónar taka þátt í helgihaldi. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.

By |2015-01-23T16:00:37+00:0022. janúar 2015 | 19:06|

Guðsþjónusta og barnastarf 18. janúar kl. 11:00

Sunnudaginn 18. janúar kl. 11:00 er guðsþjónusta og barnastarf  í Keflavíkurkirkju. Sr. Erla Guðmundsdóttir, Systa, Esther og Anna Hulda leiða barnastarfið. Sólmundur Friðriksson leikur á gítar í forföllum organistans. Sjálfboðaliðar bera fram súpu eftir messu og messuþjónar taka þátt í helgihaldi. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.

By |2015-01-12T10:21:04+00:0012. janúar 2015 | 10:21|

Gítarguðsþjónusta sunndaginn 11. janúar

Sunnudaginn 11. janúar kl. 11:00 er gítarguðsþjónusta í Keflavíkurkirkju. Sólmundur Friðriksson leikur á strengjahljóðfæri að eigin vali. Rótarýmenn lesa ritningartexta. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.

By |2015-01-07T12:55:22+00:007. janúar 2015 | 12:55|

Guðsþjónusta 11. janúar

Guðsþjónusta verður í Keflavíkurkirkju sunnudaginn 11. janúar n.k. kl. 11:00. Sólmundur Friðriksson leikur á gítar og leiðir sönginn. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson.

By |2015-01-05T00:07:48+00:005. janúar 2015 | 00:02|

Jól og áramót í Keflavíkurkirkju

Hér má nálgast dagskrána yfir jól og áramót í Keflavíkurkirkju Vakin er athygli á að jólasöngvar fjölskyldunnar, á annan í jólum hefjast kl. 11:00.

By |2014-12-22T11:02:19+00:0015. desember 2014 | 14:36|

Jólaball í Keflavíkurkirkju

Sunnudaginn 14. desember kl. 11:00 er jólaball í Keflavíkurkirkju. Allir eru velkomnir og jólasveinar mæta með góðgæti. kl. 20:00 eru svo tónleikar Kórs Keflavíkurkirkju. Valdimar er gestur kvöldins og syngur ásamt sönghópnum Vox Felix.

By |2014-12-10T18:56:45+00:0010. desember 2014 | 18:56|

Dagskrá jólanna

Hér má sjá dagskrána yfir hátíðarnar í Keflavíkurkirkju: Aðfangadagur 24. des. 16:00 Jólin allastaðar.  Dagskrá fyrir börn á öllum aldri í aðdraganda jólanna. Sr. Erla Guðmundsdóttir leiðir stundina. Arnór Vilbergsson er við hljóðfærið. Elmar Þór Hauksson syngur (Messuþjónusta: hópur C) 18:00 Hátíðarguðsþjónusta. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Prestur er sr. Skúli S. Ólafsson [...]

By |2014-12-03T15:15:42+00:003. desember 2014 | 15:15|

Sunnudagurinn 7. desember

Á annan sunnudag í aðventu er guðsþjónusta og barnastarf kl. 11:00. Arnór Vilbergsson er við hljóðfærið og leiðir söng félaga úr Kór Keflavíkurkirkju. Sr. Erla Guðmundsdóttir, Esther, Anna Hulda og Systa stýra barnastarfinu. Messuþjónar lesa texta og sjálfboðaliðar reiða fram veitingar að messu lokinni. kl. 20:00 er sönghátíð Vox Felix sem syngur jólalög undir stjórn [...]

By |2014-12-03T10:19:34+00:003. desember 2014 | 10:19|
Go to Top