Messur

Léttmessa 29. maí kl. 11

Sunnudaginn 29. maí kl. 11 verður messa með léttu sniði þar sem fermingarbörnum 2017 og fjölskyldum er sérstaklega boðið. Ungmennakórinn Vox Felix syngur undir stjórn Arnórs organista. Prestar eru Erla og Eva Björk. Messan fer fram í Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju vegna framkvæmda í kirkjuskipi. Skráning í fermingarfræðslu 2016-2017 er hafin og er hún með rafrænum [...]

By |2017-03-17T22:28:38+00:0027. maí 2016 | 09:29|

Hvítasunnudag kl. 11 er messa í Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Prestur er Erla Guðmundsdóttir

By |2016-05-13T14:00:53+00:0013. maí 2016 | 14:00|

Uppstigningardagur – Dagur aldraðra

Fimmtudagurinn 5. maí er uppstigningardagur. Það var í tíð hr. Péturs Sigurgeirssonar biskups Íslands, að ákveðið var að tileinka öldruðum daginn. Víða er því öldruðum sérstaklega boðað til helgihalds á þessum degi. Í Kirkjulundi, safnaðarheimili Keflavíkurkirkju verður guðsþjónusta klukkan 14:00. Eldey, kór eldri borgara syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista og Viðar Guðjónsson leikur á flügelhorn. Prestur er sr. [...]

By |2017-03-17T22:28:55+00:0030. apríl 2016 | 21:42|

Guðsþjónusta kl. 13

Sunnudaginn 1. maí kl. 13 er guðsþjónusta í Keflavíkurkirkju. Sr. Erla og sr. Eva Björk þjóna. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Tvær stúlkur verða fermdar. Allir velkomnir.

By |2016-04-26T13:02:24+00:0026. apríl 2016 | 13:02|

Sunnudaginn 1. maí kl. 11 verður flutt orgeltónlistarævintýrið Lítil saga úr orgelhúsi  sem leiðir hlustandann inn í töfraheim pípuorgelsins á skemmtilegan hátt. Söguna gerði Guðný Einarsdóttir, organisti en tónlistina samdi Michael Jón Clarke, tónskáld. Sagan fjallar um orgelpípurnar sem búa í orgelhúsinu. Það gengur á ýmsu í samskiptum hjá orgelpípunum og Sif litla sem er [...]

By |2016-04-26T12:53:00+00:0026. apríl 2016 | 12:53|

Skátamessa á sumardaginn fyrsta

Við fögnum sumri með skátafélaginu Heiðarbúum.  Farið verður í skrúðgöngu frá skátaheimilinu Vatnsnesvegi 101 að Keflavíkurkirkju kl. 12:30. Messan hefst klukkan 13:00 og hvetjum við alla til að mæta, unga skáta jafnt sem þá sem enn eru ungir í anda. Á eftir bjóða Heiðarbúar upp á skemmtidagskrá í 88-húsinu frá kl. 15:00-18:00. Hoppukastalar, fullorðinshappdrætti, flóamarkaður, [...]

By |2017-03-17T22:29:00+00:0020. apríl 2016 | 13:42|

Hafdís og Klemmi í Keflavíkurkirkju

Hafdís og Klemmi eru börnum velkunnug sem vinirnir úr þáttaseríunum Daginn í dag. Þau koma til okkar í Keflavíkurkirkju í eigin persónu, sunnudaginn 24. apríl kl. 11. Þar koma þau fram í leiksýningunni Hafdís og Klemmi og leyndardómar háaloftsins. Sýningin, sem miðlar kristlegum boðskap, fjallar um ævintýri vinanna tveggja sem finna dularfullt tæki uppiá háalofti [...]

By |2016-04-19T16:29:38+00:0019. apríl 2016 | 16:28|

Fermingar í Keflavíkurkirkju

Fermingarbörnin er sannarlega fallegir vorboðar. Nú er mikið tilstand og gleði í Keflavíkurkirkju því fermingar eru að hefjast. Fermingardagar eru þessir: Sunnudaginn 3. apríl kl. 11 og 14 - Heiðarskólabörn Sunnudaginn 10. apríl kl 11 - Myllubakkaskólabörn Sunnudaginn 17. apríl kl. 11 og 14 - Holtaskólabörn Enginn sunnudagaskóli er að meðan fermingar standa yfir.

By |2016-04-03T08:50:46+00:003. apríl 2016 | 08:50|

Sunnudagur í föstuinngang

Sjöundi dagur febrúarmánuðar er  sunnudagur í föstuinngangi en þá verður frásögn um skírn Jesú til skoðunar. Sunnudagskólinn er á sama tíma kl. 11 undir stjórn Önnu Huldu og Jóns Árna. Messuþjónarnir eru Stefán Jónsson og Guðrún Hákonardóttir. Hjónin Jóhanna og Jóhann matreiða súpu sem boðið er uppá í lok messu Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. Útvarpað [...]

By |2017-03-17T22:29:44+00:004. febrúar 2016 | 21:10|

Biblíudagurinn

Guðspjall Biblíudagsins sem er næsti sunnudagur fjallar um sáðmann og fræ...fræin eru orð Guðs og það er okkar að taka á móti þeim. Messa og sunnudagaskóli kl. 11, kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Messuþjónar taka á móti gestum og lesa texta, prestur er sr. Eva Björk Valdimarsdóttir. Það verður stuð í sunnudagaskólanum [...]

By |2017-03-17T22:29:47+00:0029. janúar 2016 | 18:31|
Go to Top