Messur

Lára og Hafsteinn á ljúfum nótum á sunnudaginn

Sunnudaginn 24. september kl. 11 munu Lára Grétarsdóttir og Hafsteinn Hjartarson leiða söng með ljúfum tónum við messu. Systa. Jóhanna María og Helga hafa umsjón með  sunnudagskólanum sem er á sama tíma. Linda Gunnarsdóttir sinnir messuþjónustu og sr. Erla þjónar. Súpuþjónar og fermingarforeldar reiða fram súpu og brauð sem gefið er af Sigurjónsbakarí

By |2017-09-20T15:06:41+00:0020. september 2017 | 15:06|

Við heilsulindina í Betesda 17. september kl. 11

Sunnudagaskólinn verður með biblíusögu, bæn og kröftugum söng sunnudaginn 17. sept. kl. 11. Jóhanna María, Jón Árni og Helga sjá um barnastundina. Hjónin Ólöf Sveinsdóttir og Kristinn Þór Jakobsson eru messuþjónar og fermingarforeldrar ásamt súpuþjónum bera fram súpu og brauð. Á sama tíma er messa í kirkjuskipinu. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja við undirleik Arnórs [...]

By |2017-09-11T11:07:48+00:0011. september 2017 | 11:07|

Sunnudagaskólinn hefst á ný 10. september kl. 11

Sunnudagaskólinn hefst á ný 10. september kl. 11. Í vetur verður hann sem fyrr í umsjón Systu, Helgu, Jóns Árna og Jóhönnu Maríu. Bænir, biblíusögur, söngur, líf og fjör alla sunnudaga í vetur kl. 11. Á sama tíma eru vikulegar messur þar sem Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Í lokin bjóða fermingarforeldrar uppá súpu [...]

By |2017-09-05T16:34:03+00:005. september 2017 | 16:30|

Kvöldmessa með Vox Felix

Það er gott, gefandi og gaman í messu með Vox Felix. Arnór organisti leiðir þennan ungmennakór í kvöldmessu sunnudagskvöldið 27. ágúst kl. 20. Verðandi fermingarbörn og fjölskyldur eru sérstaklega hvött til að koma en reifað verður á fermingarfræðslu komandi vetur að lokinni messu.

By |2017-08-22T10:30:47+00:0022. ágúst 2017 | 10:30|

Kveðjumessa sr. Evu Bjarkar 20. ágúst kl. 20

Sunnudagskvöldið 20. ágúst kl. 20 verður kveðjumessa sr. Evu Bjarkar sem hefur þjónað söfnuðinum af heilum hug og fallegu hjarta sl. 2 ár. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja henni til heiðurs við undirspil Arnórs organista og Eva Björk mun sjálf predika. Sóknarnefnd og starfsfólk þakkar Evu Björk samfylgdina og biður henni Guðsblessun og hvetur söfnuðinn [...]

By |2017-08-18T16:06:06+00:0018. ágúst 2017 | 15:33|

Kvöldgöngumessa

Sunnudagskvöldið 30. júlí kl. 20 verður kvöldgöngumessa. Við byrjum á kirkjutröppunum og röltum um gamla bæinn. Stoppum fyrir söng, hugleiðingu og fróðleik og endum í spjalli yfir kaffisopa og heimabökuðu á Brunnstíg 3. Arnór og Erla leiða stundina.

By |2017-07-29T09:29:23+00:0029. júlí 2017 | 09:29|

Kvöldmessa með Vox Felix

Köldmessa í Keflavíkurkirkju sunnudaginn 28. maí kl. 20. Við ætlum að vera á hugljúfum og léttum nótum með Vox Felix félögum. Arnór og Erla leiða stundina í söngvum, bænum og biblíufrásögn

By |2017-05-28T13:50:31+00:0028. maí 2017 | 13:50|

Heiðarskólabörn fermd 30. apríl kl. 11

Sunnudaginn 30. apríl kl. 11 verða Heiðarskólabörn verða fermd af prestunum Erlu og Evu Björk. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista og messuþjónar eru Helga Jakobsdóttir og Þórunn Þórisdóttir.

By |2017-04-26T22:39:14+00:0026. apríl 2017 | 22:39|

Fermingar hefjast með Myllubakkaskólabörnum

Sunnudaginn 23. apríl kl. 11 verður fyrsta fermingarmessan í Keflavíkurkirkju vorið 2017. Myllubakkaskólabörn verða fermd af sr. Erlu Guðmundsdóttur. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista og messuþjónar eru mægurnar Linda Gunnarsdóttir og Marín Hrund Jónsdóttir.

By |2017-04-21T21:59:51+00:0021. apríl 2017 | 21:59|
Go to Top