Fréttir

Rótarýmessa á Biblíudegi í Keflavíkurkirkju

Biblíudagurinn er sérstaklega helgaður bókinni sem breytir heiminum.  Hann er sunnudaginn 24. feb og þá kl. 11 verður árleg Rótarýmessa Keflavíkurkirkju. Félagi Rótarýklúbbs Keflavíkur og menningarverðlaunahafi Reykjanesbæjar, listakonan Sossa, flytur hugleiðingu um hvernig hún sótti myndefni í bíblíumyndir er hún hélt sýningu á þeim verkum í Kirkjulundi haustið 2007. Í kjölfar veitti hún Keflavíkurkirkju að [...]

By |2019-02-18T11:44:25+00:0018. febrúar 2019 | 11:38|

Ukulele messa sunnudaginn 17.febrúar kl.11

Sunnudaginn 17. feb. kl. 11:00. er ukulele messa í Keflavíkurkirkju, Arnór  sér um að leiða okkur í ukulele spili og söng, við hvetjum alla sem eru ukulele spilandi til að taka með sér hljófæri og spila með. Sr.Fritz Már Jörgensson þjónar ásamt messuþjónum. Systa og hennar fólk leiða sunnudagaskólann á sama tíma. Eftir messu bjóða sóknarnefnd [...]

By |2019-02-11T09:56:42+00:0011. febrúar 2019 | 09:56|

Óskalagamessa sunnudaginn 3.febrúar

Sunnudaginn 3.febrúar kl.11 verður óskalagamessa í Keflavíkurkirkju, þá ætlum við að syngja sálma sem þið veljið. Við munum taka á móti tillögum á facebook og sömuleiðis í kyrrðarstundinni á miðvikudag. Sr.Fritz Már þjónar fyrir altari, Arnór og kór Keflavíkurkirkju leiða okkur í söng. Messuþjónar lesa ritningarlestra og sunnudagaskólinn verður á sínum stað undir styrkri stjórn [...]

By |2019-01-28T15:53:20+00:0028. janúar 2019 | 09:39|

Lopapeysumessa og sunnudagaskóli 20 janúar..

Á sunnudaginn verður lopapeysumessa í Keflavíkurmessu í tilefni af þorramánuði sem hefst í næstu viku. Sr.Fritz Már þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Arnór leiðir karlana í kór kirkjunnar og kirkjugesti í söng en konurnar verða uppteknar við súpugerð og bakstur þar sem þær ætla að bjóða í súpu og hjónabandssælu eftir messu. Sunnudagaskólinn undir styrkri [...]

By |2019-01-16T22:58:50+00:0016. janúar 2019 | 22:58|

Nú mega jólin koma fyrir mér..

Sunnudagurinn 16. des. kl. 11:00. Nú mega jólin koma fyrir mér. Guðsþjónusta í keflavíkurkirkju, við syngjum saman jólalögin og heyrum guðsorð. Arnór Vilbergsson organist leiðir okkur í söng. Sr.Fritz Már Jörgensson þjónar ásamt messuþjónum. Njótum saman yndislegrar stundar með söng og gleði á aðventunni.

By |2018-12-10T10:39:07+00:0010. desember 2018 | 10:39|

Fyrsti sunnudagur í aðventu

Á sunnudaginn er fyrsti sunnudagur í aðventu, við byrjum kl.11 um morguninn með ljósamessu þar sem fermingarbörn ásamt barna og unglingakór kirkjunnar eru í aðalhlutverki og að sjálfsögðu kveikjum við á fyrsta aðventukertinu. Sr. Fritz Már þjónar ásamt messuþjónum og Arnór stjórnar tónlistinni af sinni alkunnu snilld. Eftir guðsþjónustu njótum við samfélags í Kirkjulundi og bjóða [...]

By |2018-11-26T11:25:33+00:0026. nóvember 2018 | 11:25|

Úgúlelemessa síðasta sunnudag kirkjuársins

Á þessum síðasta sunnudegi kirkjuársins, 25. nóvember kl. 11, verður að vanda sunnudagaskóli en messan verður þó með öðrum hætti en vanalega. Arnór organisti ætlar að geyma orgelskóna en draga fram úgúlele og leika undir söng Kórs Keflavíkurkirkju með því einfalda en einstaka hljóðfæri. Systa, Helga og Jóhanna hafa umsjón með sunnudagaskólanum. Súpa og brauð [...]

By |2018-11-20T09:29:46+00:0020. nóvember 2018 | 09:28|

Eide messa og sunnudagaskóli

Á sunnudag kl.11 er Eide messa í Keflavíkurkirkju, Sindre Eide er norskur prestur, sem unnið hefur stórvirki í að kynna trúartónlist fjarlægra þjóða með ólíkum hryn og sveiflu og laga að lútersku helgihaldi. Kikjukórinn okkar og Arnór organisti munu leiða okkur í söng og tónlist eftir Eide. Sr.Fritz Már þjónar á ásamt messuþjónum. Sunnudagaskólinn verður á [...]

By |2018-11-14T08:24:42+00:0014. nóvember 2018 | 08:24|

Söfnunarkvöld fermingarbarna 5. nóvember

Kæri Keflavíkursöfnuður   Fermingarbörn Keflavíkurkirkju munu ganga í hús í söfnuðinum í kvöld, 5. nóvember frá kl. 17:30, og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Þetta er árleg söfnun fermingarbarna um allt land fyrir vatnsbrunnum í Eþíópíu og Úganda.   Við hvetjum íbúa í Keflavíkursókn til að taka vel á móti fermingarbörnunum sem ávallt hafa staðið [...]

By |2018-11-05T12:46:18+00:005. nóvember 2018 | 12:45|

Hvítatasunnusamkoma og Allra heilagra messa.

Það er nóg að gera í kirkjunni á sunnudag þ.4 nóvember. Kl.11 er messa og sunnudagaskóli, gestir okkar í messunni koma frá Hvítasunnukirkjunni í Keflavík og mun forstöðumaður safnaðarins Kristinn Ásgrímsson leiða stundina ásamt sr.Fritz Má. Að venju býður sóknarnefnd upp á súpu sem borin er fram af fermingarforeldrum í kirkjulundi eftir stundina. Kl.20 um [...]

By |2018-10-31T07:37:21+00:0031. október 2018 | 07:36|
Go to Top