Hin árlega púttmessa verður sunnudaginn 21. júlí kl.13 á púttvellinum við Mánagötu. Í beinu framhaldi af helgistund hefst púttmótið en verðlaunaafhending fer fram í Kirkjulundi þar sem verður boðið uppá kaffi og meðlæti.

Verið velkomin að rækta líkama og sál á sumardegi. Prestur er sr. Fritz Már Jörgensson