Köldmessa 17. maí kl. 20
Kvöldmessa í Keflavíkurkirkju sunnudagskvöldið 17. maí kl. 20. Arnór organisti leikur undir söng Elmars Þórs Haukssonar. Sr. Erla þjónar. Verið velkomin
Kvöldmessa í Keflavíkurkirkju sunnudagskvöldið 17. maí kl. 20. Arnór organisti leikur undir söng Elmars Þórs Haukssonar. Sr. Erla þjónar. Verið velkomin
Kæru vinir, við í kirkjunni gerum okkar besta til að bæta það upp að geta ekki haldið messur, sunnudagaskóla og annað það sem kirkjan að öllu jöfnu býður upp á. Í dag verður eftirfarandi efni í boði á facebook síðu Keflavíkurkirkju: Sunnudagaskólinn er kominn inn og hægt að horfa á hann Tengill á útvarpsmessu verður [...]
Kæru vinir, eins og ljóst er orðið þá verður hvorki messa né sunnudagaskóli í kirkjunni okkar á sunnudaginn. Við munum setja tengil inn á facebook á útvarpsmessu sem byrjar kl.11 á sunnudag og sömuleiðis verður hægt að horfa á sunnudagaskólann á youtube rás barnastarfs kirkjunnar, en það er hægt að komast þar inn með því [...]
Ykkur til upplýsinga um starf Keflavíkurkirkju á meðan samkomubann gildir vegna COVID-19 Skrifstofa kirkjunnar verður opin þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 10-12 fram yfir samkomubann. Sími kirkjunnar 4204300 verður opinn eins og vanalega. Allt formlegt starf Keflavíkurkirkju fellur niður: Messur, sunnudagaskóli, æskulýðsstarf, kóræfingar og annað safnaðarstarf fram yfir samkomubann. Fermingar vorsins falla [...]
Sunnudaginn 15. mars kl. 11 er hefðbundin messa og sunnudagaskóli. Kórfélagar syngja undir stjórn Arnórs organista. Sr. Erla þjónar. Jóhanna, Helga og Ingi Þór leiða sunnudagaskólann á sama tíma. Ekki verður boðið uppá súpusamfélag að lokinni messu í ljósi aðstæðna vegna COVID-19 veirunnar.
Sunnudaginn 8.mars verður messa og sunnudagskóli í Keflavíkurkirkju. Helga, Jóhanna og Ingi sjá um sunnudagaskólann sem að venju hefst í kirkjunni en flyst svo inn í Kirkjulund. Séra Fritz Már leiðir messuna ásam messuþjónum. Arnór Vilbergsson ásam kór Keflavíkurkirkju leiða söng og tónlist í messunni. Komum saman og njótum góðrar samveru, góðra orða og fallegrar [...]
Kæru vinir á miðvikudag kl.17.30 verður sorgarerindi í Keflavíkurkirkju, Séra Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir sjúkrahússprestur kemur til okkar og flytur erindi um makamissi og sorg. Kl.20 á miðvikudag verður eins og alltaf á fyrsta miðvikudegi í hverjum mánuði æðrulesismessa í Keflavíkurkirkju. Séra Fritz Már leiðir stundina, Rafn Hlíðkvist færir okkur tónlistina og félagi deilir með okkur [...]
Sunnudagurinn 1. mars í Keflavíkurkirkju beinir sjónum sínum að börnum, unglingum og umhverfinu Kl. 11 – Fjölskyldumessa. Regnbogaraddir Keflavíkurkirkju koma fram í söng undir stjórn Arnórs organista og Freydísar Kneifar. Söngur biblíusaga, bænir og tveir Rebbar koma í heimsókn. Súpa og Sigurjónsbrauð í boði eftir messu. Frjáls framlög í baukinn renna til verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar [...]
Sunnudaginn 23 febrúar kl.11 verður konudagsmessa og sunnudagaskóli í Keflavíkurkirkju kl.11. Konurnar í kór Keflvíkurkirkju munu sjá um söng undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. En á sama tíma verða karlarnir á fullu í eldhúsinu að útbúa súpu fyrir súpusamfélagið sem verður í Kirkjulundi eftir messu. Séra Fritz Már þjónar fyrir altari ásamt Jóhönnu og Jóhanni sem [...]
Guðspjall Biblíudagsins, sem er sunnudagurinn 16. febrúar, fjallar um sáðmann og fræ… fræin eru orð Guðs og það er okkar að taka á móti þeim. Að vanda er messa og sunnudagaskóli á sama tíma kl. 11. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Linda Gunnarsdóttir messuþjónnn mun taka á móti kirkjugestum og lesa ritningartexta. Sr. [...]