Fréttir

Sumarmessur á Suðurnesjum 2020

Kæru vinir, nú í sumar verður fjölbreytt messuhald á Suðurnesjum, kirkjurnar deila með sér messuhaldi þannig að það er hægt að finna fjölbreyttur messur á svæðinu í allt sumar þrátt fyrir sumarfrí. Njótum þess að fara á milli og heimsækja nágranna okkar. Hér að neðan er að finna dagskrá sumarsins.   31.maí. Hvítasunna  Ytri Njarðvíkurkirkja [...]

By |2020-05-31T10:54:11+00:0031. maí 2020 | 10:54|

Kvöldmessa á hvítasunnu

Rauður er litur hvítasunnunnar. Litur andans og kærleika, Gleðilega afmælishátíð er jafnan kveðjan á hvítasunnudegi er kristin kirkjan um allan heim fagnar fæðingarhátíð kirkjunnar. Á síðasta kvöldi maímánaðar, hvítasunnukvöldið 31. maí, verður messa í Keflavíkurkirkju kl. 20. Elmar Þór Hauksson syngur við undrleik Arnórs organista. Sr. Erla þjónar.    

By |2020-05-28T12:59:18+00:0028. maí 2020 | 12:59|

Kvöldmessa sunnudaginn 25.maí 2020

Kæru vinir, í kvöld sunnudaginn 24.maí kl.20 verður Guðsþjónusta í Keflavíkurkirkju. Við ætlum að eiga saman lágstemmda kvöldstund. Heyrum Guðs orð, biðjum og hlustum á fallega tónlist. Allir eru innilega velkomnir.

By |2020-05-24T10:22:47+00:0024. maí 2020 | 10:22|

Kvöldmessa í Keflavíkurkirkju á uppstigningardag

Kæru vinir, á fimmtudag 21.maí kl.20 - uppstigningardag verður kvöldmessa í Keflavíkurkirkju. Arnór Vilbergsson og Steinn Erlingsson sjá um að færa okkur tónlist og söng. Séra Fritz Már, þjónar fyrir altari. Komum saman og njótum notalegrar stundar með Guðs orði og fallegum tónum. Hlökkum til að eiga stundina með ykkur og að sjálfsögðu eru allir [...]

By |2020-05-19T09:48:01+00:0019. maí 2020 | 09:48|

Skráning í fermingarfræðslu 2020-2021 er hafin

Raræn skráning í fermingarfræðslu veturinn 2020-2021 er hafin. Mikilvægt er að fylla út í alla reiti og gæta þess að netföng séu rétt skráð. Linkurinn: http://www.keflavikurkirkja.is/ferming/skraning/ Allar upplýsingar um fermingarfræðslu í Keflavíkurkirkju og dagsetningar fermingadaga 2021 er að finna á heimasíðu Keflavíkurkirkju.    

By |2020-05-18T15:39:08+00:0018. maí 2020 | 15:34|

Kirkjugarðar Keflavíkur leita að starfsmanni – aðstoðarumsjónarmanni i hlutastarf

Kirkjugarðar Keflavíkur leita að starfsmanni - aðstoðarumsjónarmanni í hlutastarf Vinnan felst í umsjón og umhirðu tveggja kirkjugarða í Keflavík.  Aðstoðarumsjónarmaður er verkstjóri yfir hópi unglinga sem sjá um grasslátt og almenna umhirðu garðanna yfir sumartímann.  Starfið er full vinna í 2,5 – 3 mánuði yfir sumartímann.  Yfir vetrartímann er um hlutastarf við umhirðu garðanna að [...]

By |2020-05-14T07:36:03+00:0014. maí 2020 | 07:13|

Köldmessa 17. maí kl. 20

Kvöldmessa í Keflavíkurkirkju  sunnudagskvöldið 17. maí kl. 20. Arnór organisti leikur undir söng Elmars Þórs Haukssonar. Sr. Erla þjónar.   Verið velkomin

By |2020-05-12T11:34:42+00:0012. maí 2020 | 11:34|

Sunnudagur í Keflavíkurkirkju

Kæru vinir, við í kirkjunni gerum okkar besta til að bæta það upp að geta ekki haldið messur, sunnudagaskóla og annað það sem kirkjan að öllu jöfnu býður upp á. Í dag verður eftirfarandi efni í boði á facebook síðu Keflavíkurkirkju: Sunnudagaskólinn er kominn inn og hægt að horfa á hann Tengill á útvarpsmessu verður [...]

By |2020-03-22T10:57:55+00:0022. mars 2020 | 10:57|

Sunnudagur í Keflavíkurkirkju

Kæru vinir, eins og ljóst er orðið þá verður hvorki messa né sunnudagaskóli í kirkjunni okkar á sunnudaginn. Við munum setja tengil inn á facebook á útvarpsmessu sem byrjar kl.11 á sunnudag og sömuleiðis verður hægt að horfa á sunnudagaskólann á youtube rás barnastarfs kirkjunnar, en það er hægt að komast þar inn með því [...]

By |2020-03-20T11:50:51+00:0020. mars 2020 | 11:50|
Go to Top