Fréttir

Sjómannadagurinn í Reykjanesbæ 2021

Sjómannamessa verður í Bíósal Duus Safnahúsa á sjómannadaginn 6. júní kl. 11. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju leiða söng við undirspil og stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar. Safnstjóri Byggðasafns Reykjanesbæjar kynnir sýninguna Fast þeir sóttu sjóinn – Bátasafn Gríms Karlssonar. Í lok dagskrár verður lagður krans við minnismerki sjómanna á Bakkalág við Hafnargötu.

By |2021-06-03T08:25:33+00:003. júní 2021 | 08:25|

Sunnudagurinn 30 maí kl.20.

Kæru vinir, sunnudaginn 30.maí kl.20 verður kvöldmessa í Keflavíkurkirkju. Séra Fritz Már þjónar fyrir altari. Arnór VIlbergsson og félagar úr kór Keflavíkurkikju færa okkur ljúfa tóna. Komum saman í upphafi nýrrar viku, kyrrum hugann og njótum ljúfrar samveru. Verið öll innilega velkomin.

By |2021-05-26T20:33:25+00:0026. maí 2021 | 20:33|

Hvítasunnudagur kl. 11

Hvítasunnudaginn 23. maí kl. 11 veð sex ungmenni fermd í Keflavíkurkirkju. Elmar Þór syngur við undirleik Arnórs organista. Sr. Erla og sr. Fritz þjóna. Verið öll velkomin

By |2021-05-20T10:37:33+00:0020. maí 2021 | 10:37|

Taizémessa að kveldi 16. maí kl. 20

Sunnudagskvöldið 16. maí kl. 20 verður taizémessa í Keflavíkurkirkju. Slík messa á uppruna sinn að rekja til Suður Frakklands nánar tiltekið til bæjarins Taizé. Kórfélagar, undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista, syngja taize sálma sem byggist á endurteknu söngstefi sem kallar fram hughrif kyrrðar. Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar.  

By |2021-05-13T13:52:51+00:0013. maí 2021 | 13:52|

Aðalfundur Keflavíkursóknar og Kirkjugarða Keflavíkur

Miðvikudaginn 19.maí 2021, kl.17:30 verður aðaflundur Keflavíkursóknar og Kirkjugarða Keflavíkur haldinn í Kirkjulundi, safnaðaheimili Keflavíkurkirkju. Dagskrá fundar: Almenn aðalfundarstörf Kosning nýrra meðlima í sóknarnefnd.  Sóknarnefnd Keflavíkursóknar & Kirkjugarðanefnd Kirkjugarða Keflavíkur

By |2021-05-12T09:57:14+00:0012. maí 2021 | 09:57|

Messa á uppstigningardag kl.11

Messa verður í Keflavíkurkirkju kl.11 á fimmtudaginn 13.maí n.k. á uppstigningardegi en þá eru liðnir 40 dagar frá páskum. Dagurinn er helgidagur til minningar um himnaför Jesú. Við ætlum að eiga saman góða stund í kirkjunni. Arnór Vilbergsson organisti og félagar úr kór Keflavíkurkirkju ætla að færa okkur fagra tóna og söng. Séra Fritz Már [...]

By |2021-05-10T18:55:06+00:0010. maí 2021 | 18:55|

Kvöldmessa 9. maí kl. 20

Sunnudagskvöldið 9. maí kl. 20 verður kvöldmessa í Keflavíkurkirkju. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Arnórs organista. Sr. Erla þjónar. Verið öl hjartanlega velkomin

By |2021-05-04T18:47:49+00:004. maí 2021 | 18:47|

Guðsþjónusta sunnudaginn 2.maí kl.20

Kæru vinir, nú getum við aftur boðið til Guðsþjónustu. Á sunnudaginn 2.maí kl.20 verður kvöldstund í Keflavíkurkirkju. Séra Fritz Már þjónar fyrir altari, Arnór Vilbergsson organisti og félagar úr kór Keflavíkurkirkju færa okkur tóna og söng. Njótum samveru við upphaf nýrrar viku og hlíðum á orð og fallega tóna. Öll innilega velkomin.

By |2021-04-30T09:03:47+00:0030. apríl 2021 | 09:03|

Safnaðarstarf og helgihald fellur niður í 3 vikur –

Kæri söfnuður Vegna hertra sóttvarnaraðgerða fellur safnaðarstarf og helgihald í Keflavíkurkirkju niður næstu þrjár vikur. Undantekning frá þessu eru fermingar að loknum páskum sem eru einungis ætlaðar fermingarbörnum og fjölskyldum. Við munum streyma helgistundum í dymbilviku á og páskadag. Orð Páls postula færum við ykkur: "Verið glöð í voninn, þolinmóð í þjáningunni, staðföst í bæninni." [...]

By |2021-03-27T14:16:09+00:0027. mars 2021 | 09:06|

Upphaf dymbilviku – pálmasunnudagskvöld kl. 20

Pálmasunnudagur í Keflavíkurkirkju Við upphaf dymbilviku er kvöldmessa kl. 20. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja við undirleik Arnórs organista. Garðar Snorri Guðmundsson er messuþjónn. Sr. Erla þjónar. Verið velkomin

By |2021-03-24T06:49:22+00:0024. mars 2021 | 06:49|
Go to Top