Fréttir

Lopapeysumessa á sunnudagskvöld kl.20

Kæru vinir á sunnudagskvöld kl.20 verður lopapeysumessa í Keflavíkurkirkju. Lopapeysurnar eru í tilefni bóndadags enda um að gera að vera vel klæddur á þorranum. Trúin verður umræðuefni dagsins, séra Fritz Már leiðir stundina og Sólmundur Friðriksson leiðir okkur í ljúfri tónlist. Komum saman og njótum samfélagsins í ljúfri kvöldstund. Verið öll innilega velkomin. [...]

By |2023-01-21T21:56:42+00:0021. janúar 2023 | 12:03|

Hátíðarmessa á nýársdag kl. 14

Nýársdagur kl. 14 - Hátíðarmessa Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Kristjáns Hrannars Pálssonar, organista. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, flytur hátíðarræðu. Messuþjónar eru Elva Björk og Aron Smári. Er. Erla og sr. Fritz þjóna

By |2022-12-29T12:16:25+00:0029. desember 2022 | 12:16|

Breyting á helgihaldi á aðfangadag

Af óviðráðanlegum orsökum fellur aftansöngur á aðfangadag kl. 18 niður Aðfangadagur  Kl.  16   Kraftaverk á Betlehemstræti Regnbogaraddir Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Freydísar Kenifar og við undirleik Alexanders Grybos. Marín Hrund og Helga leiða sunnudagaskólabörn í helgileik og lesa jólaguðspjallið úr barnabiblíunni. Sr. Erla og sr. Fritz Már þjóna Kl.23:30  Nóttin var sú ágæt ein Kóngarnir [...]

By |2022-12-23T10:37:37+00:0023. desember 2022 | 10:37|

Þriðji sunnudagu í aðventu, jólatrésball kl.11 og ,,Þá mega jólin koma fyrir mér“ kl.20

Sunnudag 11.desember kl. 11:00 verður Jólaball í Keflavíkurkirkju, byrjum með helgistund í kirkjunni förum síðan í Kirkjulund þar sem hljómsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar leiðir jólatréssöng í Kirkjulundi. Jólasveinar koma í heimsókn. Kl. 20:00: Nú mega jólin koma fyrir mér.  Helgistund í Keflavíkurkirkju með jólasöngvum sem allir þekkja og uppáhaldssögu prestsins fyrir alla yngri sem eldri. Verið [...]

By |2022-12-06T23:29:24+00:006. desember 2022 | 23:29|

Fyrsti sunnudagur í aðventu

Á fyrsta sunnudegi í aðventu eru tvær messur í Keflavíkurkirkju: kl. 11:00, Við kveikjum einu kerti á. Fermingarbörn leiða helgistund með lestrum og sálmasöng úr nýju sálmabókinni. Arnór Vilbergsson leiðir tónlistina, sr Fritz Már þjónar. Súpa í boði eftir stundina. Kl. 20:00 Hátíð fer að höndum ein. Kór Keflavíkurkirkju syngur klassíska aðventusálma og jólaperlur undir [...]

By |2022-11-22T13:21:39+00:0022. nóvember 2022 | 13:20|

Afmælistónleikar Kórs Keflavíkurkirkju

Kór Keflavíkurkirkju fagnar 80 ára afmæli í ár og ætlar í því tilefni að halda afmælistónleika. Flutt verða óskalög kórsins í gegnum árin. Tónleikarnir verða laugardaginn 19. nóvember og byrja kl. 14 og er boðið til kaffisamsætis í Kirkjulundi eftir tónleikanna. Frítt er inná tónleikana og allir hjartanlega velkomnir.

By |2022-11-14T14:08:48+00:0014. nóvember 2022 | 14:06|

Sunnudagaskóli kl.11 og Lifi Lífið með Jóhanni Helgasyni kl.20..

Fjölskyldumessa verður haldin sunnudagin 13 nóvember kl.11. Helga, Grybos og Marín leiða stundina, brúðuleikhús, söngur og sögur. Regnbogaraddir færa okkur fallegan söng. Séra Fritz Már þjónar fyrir altari. Súpusamfélag í kirkjulundi eftir stundina. Um kvöldið kl.20 verður svo Jóa Helga messa. Kór Keflavíkurkirkju ásamt Jóhanni Helgasyni og frábærum gestasöngvurum, þeim Páli Rósinkranssyni og Sigríði Guðnadóttur [...]

By |2022-11-10T10:01:42+00:0010. nóvember 2022 | 10:01|

Tvær messur og sunnudagaskóli 6. nóv. kl. 11 og 20

Sunnudagsmorgun 6. nóv. kl. 11 mun Arnór organisti leiða söng undir ukulelespil í lágstemmdri messu sem sr. Erla annast í þjónustu. Marín, Helga og Grybos leiða sunnudagaskólann á sama tíma. Fermingarforeldrar reiða fram súpu og brauð í boði í Kirkjulundi. Sunnudagskvöld 6. nóv kl. 20 er allra heilagra messa haldin hátíðleg. Starfsfólk Heilbrigðisstofnun Suðurnesja tekur þátt [...]

By |2022-11-04T20:32:00+00:004. nóvember 2022 | 20:32|

Söfnun fermingarbarna 2. nóv. kl. 17:30-20

Fermingarbörn í Keflavíkurkirkju munu ganga í hús 2. nóvember kl. 17:30-20:00 og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Þetta er árleg söfnun fermingarbarna Þjóðkirkjunnar. Fyrir söfnunina hafa fermingarbörnin fengið fræðslu um verkefnið, sem snýst um að safna fyrir vatnsbrunnum í Eþíópíu og Úganda. Við hvetjum söfnuðinn til þess að taka vel á móti fermingarbörnum, sem hafa [...]

By |2022-10-31T16:28:49+00:0031. október 2022 | 16:28|

Messa og hrekkjavökusunnudagaskóli 30. október kl. 11

Sunnudaginn 30. október kl. 11 syngja kórfélagar undir stjórn Arnórs við messu. Linda og Elva Björk eru messuþjónar. Sr. Erla þjónar. Hrekkjavökusunnudagaskóli á sama tíma í umsjón Grybosar, Marínar og Helgu. Fermingarfjölskyldur reiða fram súpu og brauð í Kirkjulundi

By |2022-10-27T12:04:09+00:0027. október 2022 | 12:04|
Go to Top