Söfnun fermingarbarna í Keflavík 8. nóvember kl. 17:30-21:00

Fermingarbörn í Keflavíkurkirkju munu ganga í hús 8. nóvember kl. 17:30-21:00 og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Þetta er árleg söfnun fermingarbarna Þjóðkirkjunnar. Fyrir söfnunina hafa fermingarbörnin fengið fræðslu um verkefnið, sem snýst um að safna fyrir vatnsbrunnum í Eþíópíu og Úganda.

 

Við hvetjum söfnuðinn til þess að taka vel á móti fermingarbörnum, sem hafa ávallt staðið sig vel og safnað drjúgum upphæðum í þessu verkefni sem hefur komið sér vel fyrir svæði þar sem vatnsskortur er viðvarandi vandamál.

By |2023-11-06T13:05:32+00:006. nóvember 2023 | 13:05|

Deildu þessari frétt!

Go to Top