Fréttir

Sunnudagaskóli og messa 23. október kl. 11

Hefðbundinn sunnudagur þann 23. október kl. 11. Kórfélagar syngja, Arnór organisti stjórnar og leikur á orgel og sr. Fritz Már þjónar Á sama tíma er sunndagaskóli í höndum Marínar, Grybosar og Helgu. Fermingarforeldrar og fermingarbörn reiða fram súpu og brauð.

By |2022-10-21T09:31:52+00:0021. október 2022 | 09:31|

Eidemessa 18. september kl. 20

Sunnudagskvöldið 18. september kl. 20 býður Keflavíkurkirkja til Eidemessu, Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Arnórs organista og sr. Erla þjónar.

By |2022-09-13T16:10:17+00:0013. september 2022 | 16:10|

Í tilefni Alþjóðadags sjálfsvígsforvarna verður kyrrðarstund í Keflavíkurkirkju sunnudagskvöldið 11. september kl. 20. Benedikt Þór Guðmundsson deilir reynslu sinni sem aðstandandi. Benedikt Þór kom, ásamt eiginkonu sinni Guðrúnu Pétursdóttur, að stofnun Píetasamtakanna. Þessi sunnudagur er jafnframt dagur sem Þjóðkirkjan hefur tekið frá til að vekja sérstaka athygli á diakóníunni, kærleiksþjónustunni. Heiða Björg djákni mun leiða [...]

By |2022-09-07T13:42:29+00:007. september 2022 | 13:42|

Bítlamessa 4. september kl. 20

Í lok Ljósanætur býður Keflavíkurkirkja til viðburðar sem einkennist af tónlist og skemmtun. Hljómsveitin Helter Skelter, skipuð úrvalstónlistarmönnum, kemur til okkar og flytur bítlalög. Lög eins og All you need is love, Let it be, Hey Jude, Here Comes the Sun og fleiri frábær lög Bítlanna frá Liverpool. Hver veit nema sérann segi eitthvað um [...]

By |2022-08-31T10:59:15+00:0031. ágúst 2022 | 10:59|

Sumarmessur á Suðurnesjum 2022

Kirkjurnar að Suðurnesjum munu skiptast á að vera með messur í sumar eins og fyrri sumur. Endilega kynnið ykkur dagskrána með smella hér: Sumarkirkja-sudurnes Verið hjartanlega velkomin.

By |2022-06-01T13:09:00+00:001. júní 2022 | 09:55|

Fermingarmessa 8. maí kl. 11

Sunnudagur 8. maí kl. 11 er fermingarmessa í Keflavíkurkirkju er Myllubakkaskólabörn verða fermd við hatíðlega stund. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnós Vilbergssonar, organista. Sr. Erla Guðmundsdóttir og sr. Fritz Már Jörgensson þjóna.

By |2022-05-01T21:27:47+00:001. maí 2022 | 21:27|

Fermingarmessur 1. maí kl. 11 og 13

Holtakólabörn verða fermd við hátíðlega stund í Keflavíkurkirkju kl. 11 og 13. Kór Keflavíkurkirkju syndur undir stjórn Arnórs organista og sr. Erla og sr. Fritz Már þjóna.    

By |2022-04-29T09:54:21+00:0029. apríl 2022 | 09:52|

Fermingarmessur 24. apríl kl. 11 og 13

Sunnudaginn 24. apríl kl. 11 og 13 verða Heiðarskólabörn fermd í hátíðlegum fermingarmessu. Vox Felix syngur undir stjórn Rafns Hlíðkvist Björgvinssonar. Sr. Erla Guðmundsdottir og sr. Fritz Már Jörgensson þjóna ásamt Heiðu Björgu Gústafsdóttur, djákna, og Marín Hrundar Jónsdóttur.

By |2022-04-18T18:46:46+00:0018. apríl 2022 | 18:46|
Go to Top