Fréttir

Messa og sunnudagaskóli 19. mars kl. 11

Sunnudagur 19. mars kl. 11  Í messu þessa dags syngja kórfélagar undir stjórn Arnórs organista. Messuþjónar eru Halldóra Steina og Helgi Viðar. Sr. Erla þjónar. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í höndum Marínar, Helgu og Grybos sem bjóða upp á biblíusögu, bænir, brúður og söng. Fermingarforeldrar reiða fram súpu og brauð.

By |2023-03-17T15:40:29+00:0017. mars 2023 | 15:40|

Fjölskylduguðsþjónusta kl.11 sunnudaginn 12. mars

Sunnudaginn 12. mars kl.11 verðu fjölskylduguðsþjónust í Keflavíkurkirkju. Helga, Marín og Grybos taka vel á móti krökkum, foreldrum, ömmum og öfum og öllum þeim sem koma. Séra Fritz Már þjónar fyrir altari. Regnbogaraddir barnakór Keflavíkurkirkju færir okkur lifandi tóinlist undir stjórn Freydísar. Súpa og samfélag í kirkjulundi eftir stundina. Verið öll innilega velkomin.

By |2023-03-09T09:21:23+00:009. mars 2023 | 09:21|

Messa og sunnudagaskóli 5. mars kl. 11

Sunnudagur 5. mars kl. 11  Kórfélagar syngja við orgelleik Arnórs organista. Sr. Erla þjóna og í messuþjónustu eru Jónína og Páll Reykdal. Sunnudagaskóli er á sama tíma í Kirkjulundi í höndum Marínar, Helgu og Grybos. Súpa og brauð í boði í Kirkjulundi

By |2023-02-28T21:37:27+00:0028. febrúar 2023 | 21:37|

12.febrúar sunnudagaskóli kl.11 kvöldmessa kl.20

Sunnudaginn 12. febrúar verður sunnudagaskóli í Keflavíkurkirkju kl.11, Marín, Helga og Grybos taka vel á móti börnunum og leiða stundina að venju. Um kvöldið kl.20 verður messa í Keflavíkurkirkju, sr Fritz Már leiðir stundina og félagar úr kór Keflavíkurkirkju undir stjórn Arnórs Vilbergssonar sjá um að færa okkur fallega tónlist. Verið öll innilega velkomin að [...]

By |2023-02-09T10:52:00+00:009. febrúar 2023 | 10:52|

Taizésálmar í kvölmessu og sunnudagaskóli 29. janúar

Sunnudagaskólinn verður að vanda í höndum Marínar Hrundar, Helgu og Grybosar sunnudaginn 29. janúar kl. 11. Sunnudagskvöldið 29. janúar kl. 20 er taizémessa í Keflavíkurkirkju. Kórfélagar, undir stjórn Arnórs organista, syngja taizé sálma sem byggist á endurteknu söngstefi er kalla fram hughrif kyrrðar. Linda er messuþjónn og sr. Erla þjónar.

By |2023-01-24T09:15:53+00:0024. janúar 2023 | 09:15|

Lopapeysumessa á sunnudagskvöld kl.20

Kæru vinir á sunnudagskvöld kl.20 verður lopapeysumessa í Keflavíkurkirkju. Lopapeysurnar eru í tilefni bóndadags enda um að gera að vera vel klæddur á þorranum. Trúin verður umræðuefni dagsins, séra Fritz Már leiðir stundina og Sólmundur Friðriksson leiðir okkur í ljúfri tónlist. Komum saman og njótum samfélagsins í ljúfri kvöldstund. Verið öll innilega velkomin. [...]

By |2023-01-21T21:56:42+00:0021. janúar 2023 | 12:03|

Hátíðarmessa á nýársdag kl. 14

Nýársdagur kl. 14 - Hátíðarmessa Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Kristjáns Hrannars Pálssonar, organista. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, flytur hátíðarræðu. Messuþjónar eru Elva Björk og Aron Smári. Er. Erla og sr. Fritz þjóna

By |2022-12-29T12:16:25+00:0029. desember 2022 | 12:16|

Breyting á helgihaldi á aðfangadag

Af óviðráðanlegum orsökum fellur aftansöngur á aðfangadag kl. 18 niður Aðfangadagur  Kl.  16   Kraftaverk á Betlehemstræti Regnbogaraddir Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Freydísar Kenifar og við undirleik Alexanders Grybos. Marín Hrund og Helga leiða sunnudagaskólabörn í helgileik og lesa jólaguðspjallið úr barnabiblíunni. Sr. Erla og sr. Fritz Már þjóna Kl.23:30  Nóttin var sú ágæt ein Kóngarnir [...]

By |2022-12-23T10:37:37+00:0023. desember 2022 | 10:37|

Þriðji sunnudagu í aðventu, jólatrésball kl.11 og ,,Þá mega jólin koma fyrir mér“ kl.20

Sunnudag 11.desember kl. 11:00 verður Jólaball í Keflavíkurkirkju, byrjum með helgistund í kirkjunni förum síðan í Kirkjulund þar sem hljómsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar leiðir jólatréssöng í Kirkjulundi. Jólasveinar koma í heimsókn. Kl. 20:00: Nú mega jólin koma fyrir mér.  Helgistund í Keflavíkurkirkju með jólasöngvum sem allir þekkja og uppáhaldssögu prestsins fyrir alla yngri sem eldri. Verið [...]

By |2022-12-06T23:29:24+00:006. desember 2022 | 23:29|

Fyrsti sunnudagur í aðventu

Á fyrsta sunnudegi í aðventu eru tvær messur í Keflavíkurkirkju: kl. 11:00, Við kveikjum einu kerti á. Fermingarbörn leiða helgistund með lestrum og sálmasöng úr nýju sálmabókinni. Arnór Vilbergsson leiðir tónlistina, sr Fritz Már þjónar. Súpa í boði eftir stundina. Kl. 20:00 Hátíð fer að höndum ein. Kór Keflavíkurkirkju syngur klassíska aðventusálma og jólaperlur undir [...]

By |2022-11-22T13:21:39+00:0022. nóvember 2022 | 13:20|
Go to Top