Sjómannamessa verður í Bíósal Duus Safnahúsa sjómannadaginn 4. júní kl. 11.
Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju leiða söng við undirspil og stjórn Alexanders Grybos.
Sr. Erla Guðmundsdóttir þjónar.
Við lok stundar verður gengið að minnismerki sjómanna á Bakkalág við Hafnargötu og þar lagður blómakrans frá Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis.
Verið öll innilega velkomin að koma, njóta orða og tónlistar og leggja íslenska sjómanninn og sjómennsku í fyrirbæn. Kaffi og nýsteiktar kleinur á borði.