Pílagrímagagna sunnudaginn 9. júlí

Pílagrímagagna sunnudaginn 9. júlí

Sunnudaginn 9. júlí verður farin pílagrímaganga að steinhellunni sem sr. Sigurður B. Sívertsen áði á í óveðri forðum tíð. Gengið verður frá Útskálakirkju og Keflavíkurkirkju kl 12:00. Gönguhóparnir mætast svo við Golfskálann í Garði og fá hressingu. Þá verður gengið frá Golfskálanum kl. 13:30 að steinhellunni, um einn kílómeter og þar er hægt að koma [...]

By |2017-07-08T17:29:27+00:008. júlí 2017 | 17:29|

Kóngareið 1. júlí

Karlakvartettinn Kóngar mun hjóla í allar kirkjur á Suðurnesjum þann 1 júlí n.k. og taka lagið en markmiðið er að safna áheitum í orgelsjóð Keflavíkurkirkju. Kvartettinn skipa þeir Arnór B. Vilbergsson kantor Keflavíkurkirkju og stjórnandi, Elmar Þór Hauksson, Sveinn Sveinsson, Sólmundur Friðriksson og Kristján Jóhannsson, þó ekki óperusöngvarinn að norðan. Kóngar hafa ávallt verið stórhuga [...]

By |2017-06-21T12:10:54+00:0021. júní 2017 | 12:10|

Messa á sjómannadag

Messað verður á sjómannadag 11. júní nk. kl. 13:00 í Duus húsi líkt og vant er á þeim degi. Þá verður frumfluttur nýr sjómannasálmur, Siglt á djúp, eftir Arnór Vilbergsson organista og sr. Gunnþór Ingason. Sigrún Ásta Jónsdóttir safnstjóri Byggðsafns Reykjanesbæjar segir frá nýrri sýningu sem opnar þessa helgi. Lagður verður blómsveigur við minnisvarða sjómanna [...]

By |2017-06-09T11:33:24+00:009. júní 2017 | 11:29|

Sumarmessur á Suðurnesjum

Í sumar verður messuhald bæði með hefðbundnum og óhefðbundnum hætti og ættu allir að finna helgihald við sitt hæfi. Hér er hægt að sjá hvar og hvenær hægt er að sækja messur. Við hvetjum ykkur til þess að sækja messur á öllum Suðurnesjum hlökkum til að sjá ykkur sem flest, Gleðilegt sumar!  28.maí. Hvítasunna [...]

By |2023-05-11T11:08:43+00:0029. maí 2017 | 13:57|

Kvöldmessa með Vox Felix

Köldmessa í Keflavíkurkirkju sunnudaginn 28. maí kl. 20. Við ætlum að vera á hugljúfum og léttum nótum með Vox Felix félögum. Arnór og Erla leiða stundina í söngvum, bænum og biblíufrásögn

By |2017-05-28T13:50:31+00:0028. maí 2017 | 13:50|

Uppstigningardagur í Keflavíkurkirkju

Fimmtudagurinn 25. maí er uppstigningardagur. Það var í tíð hr. Péturs Sigurgeirssonar biskups Íslands, að ákveðið var að tileinka öldruðum daginn. Víða er því öldruðum sérstaklega boðað til helgihalds á þessum degi. Í Keflavíkurkirkju verður guðsþjónusta kl. 14. Eldey, kór eldri borgara á Suðurnesjum, syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista og Viðar Guðjónsson leikur á flügelhorn. Sr. Erla [...]

By |2017-05-23T15:09:09+00:0023. maí 2017 | 15:09|

Vorferð Keflavíkurkirkju 21. maí

Þá er komið að árlegri vorferð Keflavíkurkirkju og ætlum við að heimsækja hina sögufrægu Hvalsneskirkju. Við fáum fróðleik um þessa fallegu kirkju og heyrum líka Biblíusögu. Þá mætir Systa með gítarinn og við syngjum saman, það verður eitthvað fyrir alla, unga sem eldri. Eftir stund í kirkjunni verður farið í lautarferð og er fólk hvatt [...]

By |2017-05-15T09:48:59+00:0015. maí 2017 | 09:45|

Fermingar sunnudaginn 7. maí

Sunnudaginn 7. maí verða tvær fermingarathafnir í kirkjunni, kl. 11 og 14 og þá verða Holtaskólabörnin fermd af prestunum Erlu og Evu Björk. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista og messuþjónar verða Stefán Jónsson, Guðrún Hákonardóttir, Ólöf Sveinsdóttir og Kristinn Þór Jakobsson.

By |2017-05-02T09:43:01+00:002. maí 2017 | 09:43|

Heiðarskólabörn fermd 30. apríl kl. 11

Sunnudaginn 30. apríl kl. 11 verða Heiðarskólabörn verða fermd af prestunum Erlu og Evu Björk. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista og messuþjónar eru Helga Jakobsdóttir og Þórunn Þórisdóttir.

By |2017-04-26T22:39:14+00:0026. apríl 2017 | 22:39|
Go to Top