Holtaskólabörn fermd 5. maí kl. 11 og 14

Holtaskólabörn fermd 5. maí kl. 11 og 14

Annar sunnudagur með fermingarathöfnum í Keflavíkurkirkju verður 5. maí kl. 11 og 14. Holtaskólaskólabörn verða fermd af sr. Fritz og sr. Erlu við hátíðarstundu. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Messuþjónar við athafnirnar verða Þórey Eyþórsdóttir, Helga Jakobsdóttir, Garðar Guðmundsson og Fanney Ómarsdóttir.

By |2019-05-02T12:54:00+00:002. maí 2019 | 12:45|

Æðruleysismessa 1.maí kl.20 í Keflavíkurkirkju

Njótum þess að vera saman í Æðruleysismessu 1.maí kl.20 og dvelja saman í bæn, hugleiðslu og þakkargjörð. Félagi deilir reynslu, styrk og von. Sr.Fritz Már leiðir stundina og Rafn Hlíðkvist leiðir tónlist og söng. Gefum okkur það að mæta og gefum náunga okkar það að hvetja hann/hana til að koma með ♥

By |2019-04-29T08:41:54+00:0029. apríl 2019 | 08:41|

Myllubakkaskólabörn fermd 28. apríl kl. 11

Fyrsta sunnudagur með fermingarathöfnum verður sunnudaginn 28. apríl kl. 11. Myllubakkaskólabörn verða fermd af sr. Fritz Má og sr. Erlu við hátíðarstundu. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Arnórs organista. Guðrún Hákonardóttir og Stefán Jónsson eru messuþjónar.

By |2019-04-26T13:09:51+00:0026. apríl 2019 | 13:09|

Messa kl.20 á skírdagskvöldi

Skírdagur Kl. 20: Taize messa með altarisgöngu. Sr.Fritz Már Jörgensson þjónar fyrir altari. Kór keflavíkurkirkju leiðir yndislegan söng og tónlist undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Messuþjónn Linda Gunnarsdóttir. Í messulok afskríðum við altarið í kirkjunni og göngum út úr kirkjunni í þögn og ró. Allir eru innilega velkomnir.

By |2019-04-18T15:43:03+00:0018. apríl 2019 | 15:37|

Fjölskyldumessa á pálmasunnudegi

Pálmasunnudagurinnn verður með barnasöng, biblíusögu og bænum í fjölskyldumessa kl. 11. Barnakór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista og Freydísar Kneifar.  Systa og Helga leiða stundina ásamt sr. Erlu. Stefán og Guðrún eru messuþjónra. Verið velkomin til kirkju í upphafi dymbilviku

By |2019-04-09T12:03:07+00:009. apríl 2019 | 11:58|

Gítarmessa í Keflavíkurkirkju sunnudaginn 7.apríl

Verið velkomin í gítarmessu í Keflavíkurkirkju. Sigurgeir Sigmundsson einn okkar allra besti gítarleikari mun koma og þenja rafgítarinn í messunni í frábæru samstarfi við Arnór Vilbergssoon. Við syngjum ekkert á sunnudag en njótum magnaðrar tónlistar í kirkjunni. Sr.Fritz Már Þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á sama tíma undir styrkri leiðsögn Systu og Helgu. Súpusamvera í [...]

By |2019-04-04T07:33:24+00:004. apríl 2019 | 07:32|

Æðruleysismessa í Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 3.apríl kl.20

Miðvikudaginn 3.apríl kl.20 hefjum við Æðruleysismessur í Keflavíkurkirkju. Messurnar verða framvegis alltaf fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði kl.20. yfir vetrartímann. Æðruleysismessur hafa verið haldnar á Íslandi um langt árabil og nú ætlum við að gera þær að föstum lið hér í Keflavík. Messurnar eru í anda 12.sporasamtaka og miða að því að hjálpa okkur að [...]

By |2019-04-01T10:51:50+00:001. apríl 2019 | 10:49|

Á ljúfum og léttum nótum 31. mars kl. 11

Sunnudaginn 31. mars kl. 11 verðum við á ljúfum og léttum nótum í helgihaldi dagsins. Dútettin Heiður, sem skipar Hjörleif Már Jóhannesson og Eið Eyjólfsson, syngja og spila. Jóhanna, Helga og Systa bjóða uppá sunnudagaskóla með biblíusögu, bæn og söng. Linda Gunnarsdóttir er messuþjónn og Harpa Jóhannsdóttir ásamt fermingarforeldrum reiða fram súpu og brauð. Sr. Erla [...]

By |2019-03-26T19:26:09+00:0026. mars 2019 | 18:21|

Englamessa sunnudaginn 24 mars kl.11

Sunnudaginn 24 mars klukkan 11 er englamessa í Keflavíkurkirkju. Kórinn okkar syngur Missa de Angelis eða englamessu undir styrkri stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Sr. Fritz Már Jörgensson þjónar. Við munum ganga til altaris og eiga saman heilagt kvöldmáltíðarsakramenti í messunni. Jóhann Kristbergsson og Jóhanna Árnadóttir eru messuþjónar. Eftir stundina verður súpusamfélag í kirkjulundi þar sem [...]

By |2019-03-22T20:42:00+00:0022. mars 2019 | 20:42|
Go to Top