Kvöldmessa 25. ágúst kl. 20
Sunnudagskvöldið 25. ágúst kl. 20 bjóðum við til kvöldmessu í Keflavíkurkirkju. Arnór organisti leiðir söng og spilar. Sr. Erla flytur hugleiðingu, bæn og blessun. Verið velkomin.
Sunnudagskvöldið 25. ágúst kl. 20 bjóðum við til kvöldmessu í Keflavíkurkirkju. Arnór organisti leiðir söng og spilar. Sr. Erla flytur hugleiðingu, bæn og blessun. Verið velkomin.
Síðsumarkvöldið 18. ágúst kl. 20 opnum við kirkjudyr og bjóðum ykkur til kvöldmessu. Ingi Þór Ingibergsson spilar á gítar og leiðir söng. Sr. Erla flytur hugleiðingu, bæn og blessun. Verið velkomin
Hin árlega púttmessa verður sunnudaginn 21. júlí kl.13 á púttvellinum við Mánagötu. Í beinu framhaldi af helgistund hefst púttmótið en verðlaunaafhending fer fram í Kirkjulundi þar sem verður boðið uppá kaffi og meðlæti. Verið velkomin að rækta líkama og sál á sumardegi. Prestur er sr. Fritz Már Jörgensson
Helgihaldið okkar er með allt öðrum hætti á sumrin er venjan er yfir vetur. Sunnudagskvöldið 30. júní verður kvöldgöngumessa frá Keflavíkurkirkju. Haldið verður af stað frá kirkjutröppum kl. 20. Hörður Gíslason, kenndur við Sólbakka, mun flytja fróðleik er við stöldrum við á nokkrum stöðum í umhverfi kirkjunnar. Arnór organisti leiðir söng við úgúlelespil. Sr. Erla [...]
Á Hvítasunnudag 9. júní verður messa í Keflavíkurkirkju kl.11. Sr.Fritz Már Jörgensson þjónar fyrir altari. Rafn Hlíðberg Björgvinsson leiðir okkur áfram í söng. Allir innilega velkomnir.
Kæru vinir, á sjómannadag er messa í Duus húsum kl.11 sr.Fritz Már þjónar, Arnór Vilbergsson organisti og kór Keflavíkurkirkju leiða söng og tónlist, við verðum með skírn í messunni og hlökkum mikið til þess. Eftir stundina verður lagður blómakrans við minnismerki sjómanna á Bakkalág við Hafnargötu. Kl.14.15 verður messa á Hrafnistu Nesvöllum og kl.15 á Hlévangi. [...]
Fimmtudagurinn 30. maí er uppstigningardagur. Það var í tíð hr. Péturs Sigurgeirssonar biskups Íslands, að ákveðið var að tileinka öldruðum daginn. Víða er því öldruðum sérstaklega boðað til helgihalds á þessum degi. Í Keflavíkurkirkju verður guðsþjónusta kl. 14. Eldey, kór eldri borgara á Suðurnesjum, syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Sr. Erla Guðmundsdottir þjónar. Boðið verður upp á [...]
Sunnudagskvöldið 26. maí kl. 20 verðum við á hugljúfum og léttum nótum með Vox Felix félögum í kvöldmessu. Arnór organisti og sr. Erla leiða stundina í söngvum, bænum og biblíufrásögn. Takið kvöldgöngu og kíkið í kirkju
Sunnudaginn 19. maí kl. 11 verður fjölskylduhátíð í Keflavíkurkirkju. Barnakór Keflavíkurkirkju býður uppá vortónleika í kirkjuskipinu þar sem börnin syngja undir stjórn Freydísar Kolbeinsdóttur og við undirleik Arnórs Vilbergssonar organista. Jón Jónsson, tónlistarmaður, kemur fram með kórnum. Að lokinni stund kemur Blaðrarinn og skemmtir smáfólkinu í Kirkjulundi. Öllum er boðið uppá grillaðar pylsur. Sr. Fritz [...]
Heiðarskólaskólabörn verða fermd sunnudaginn 12. maí kl. 11 og kl.14. við hátíðlega athöfn í Keflavíkurkirkju. Sr. Fritz Már Jörgensson og sr. Erla Guðmundsdottir þjóna fyrir altari. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista.