Kvikumessa sunnudaginn 10. nóv kl. 11. Súpa og brauð að athöfn lokinni.

Kvikumessa sunnudaginn 10. nóv kl. 11. Súpa og brauð að athöfn lokinni.

Verið hjartanlega velkomin í Kvikumessu í Keflavíkurkirkju á sunnudaginn næsta 10. nóv kl. 11. Þemað er samfélagsleg sorg og áföll. Sunnudagaskólaleiðtogar taka vel á móti börnunum í kirkjuna og halda þau svo áfram í Kirkjulundi. Sr. Fritz Már þjónar ásamt Brynju og Elvu sem eru messuþjónar. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Súpa [...]

By |2024-11-07T10:36:29+00:007. nóvember 2024 | 10:35|

Fermingarbörn ganga í hús og safna fyrir Hjálparstarfi kirkjunnar

Fermingarbörn í Keflavíkurkirkju munu ganga í hús 6. nóv. kl. 17:30-21:00 og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Þetta er árleg söfnun fermingarbarna Þjóðkirkjunnar. Fyrir söfnunina hafa fermingarbörnin fengið fræðslu um verkefnið, sem snýst um að safna fyrir vatnsbrunnum í Eþíópíu og Úganda.   Við hvetjum söfnuðinn til þess að taka vel á móti fermingarbörnum, sem hafa ávallt [...]

By |2024-11-05T17:13:08+00:005. nóvember 2024 | 17:13|

Fimmtudag 7. nóv kl. 20 er „ljóðauppistand“ með kristinlegum blæ

Fimmtudag 7. nóv kl. 20 mun Guðmundur Brynjólfsson djákni vera með ljóðauppistand með kristinlegum blæ.  Guðmund þekkja margir en hann hefur komið víða við í kirkjulegu starfi en einnig sem skáld og rithöfundur. Guðmundur er fæddur og uppalinn á Vatnsleysuströnd. Guðmundur er ásamt því að hafa lokið prófi í djáknafræði, með gráðu í bókmennta- og [...]

By |2024-11-05T13:50:56+00:005. nóvember 2024 | 13:50|

Sunnudagskvöld 3. nóvember er Allraheilagara messa kl. 20.

Sunnudagskvöldið kl. 20 er Allraheilagra messa haldin hátíðleg í Keflavíkurkirkju í samstarfi við starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Við minnumst ástvina, hugleiðum lífið og endimörk þess. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Sr. Erla og sr. Fritz Már þjóna. Messuþjónar eru Stefán Jónsson og Guðrún Hákonardóttir. Starfsfólk HSS les upp nöfn þeirra sem létust á stofnuninni [...]

By |2024-10-30T14:07:20+00:0030. október 2024 | 14:07|

Á sunnudaginn 3. nóvember er Fjölskyldumessa kl. 11.

Verið velkomin í Keflavíkurkirkju á sunnudaginn næsta 3. nóvember. Við byrjum daginn á skemmtilegri Fjölskyldumessu kl. 11 í umsjá Ívars Valbergssonar djákna og sunnudagaskólaleiðtogum þeim Helgu, Grybosi, Jóni Inga og Rut. Regnbogaraddir barnakór Keflavíkurkirkju munu syngja undir stjórn kórstjóra. Þórey og Helga eru messuþjónar. Fermingaforeldrar sjá um að reiða fram dýrindissúpu að guðsþjónustu lokinni. [...]

By |2024-10-30T14:06:15+00:0030. október 2024 | 14:05|

Sunnudag 27. október er messa kl. 11

Verið velkomin í sunnudagsmessu 27. október kl. 11. Sunnudagaskólinn byrjar í kirkjunni að vanda ásamt leiðtogum. Sr. Helga Kolbeinsdóttir þjónar. Halldóra og Helgi eru messuþjónar. Dúettinn Heiður sér um tónlistarflutning. Súpa og brauð að athöfn lokinni í boði fermingarforeldra og barna. Öll hjartanlega velkomin.

By |2024-10-23T13:33:45+00:0023. október 2024 | 13:33|

Bleik messa sunnudaginn 20. október kl. 11

Verið hjartanlega velkomin í bleika messu á sunnudaginn næsta. Hólmfríður Jenný Árnadóttir segir reynslusögu. Krabbameinsfélag Suðurnesja kynnir starf félagsins og verður með bleikan varning til sölu. Sr. Erla þjónar og Systa er messuþjónn. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Súpa og brauð að lokinni athöfn.

By |2024-10-16T14:37:48+00:0016. október 2024 | 13:42|
Go to Top