Verið hjartanlega velkomin í bleika messu á sunnudaginn næsta. Hólmfríður Jenný Árnadóttir segir reynslusögu. Krabbameinsfélag Suðurnesja kynnir starf félagsins og verður með bleikan varning til sölu. Sr. Erla þjónar og Systa er messuþjónn. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arnórs organista. Súpa og brauð að lokinni athöfn.
