Verið velkomin í sunnudagsmessu 27. október kl. 11. Sunnudagaskólinn byrjar í kirkjunni að vanda ásamt leiðtogum. Sr. Helga Kolbeinsdóttir þjónar. Halldóra og Helgi eru messuþjónar. Dúettinn Heiður sér um tónlistarflutning. Súpa og brauð að athöfn lokinni í boði fermingarforeldra og barna. Öll hjartanlega velkomin.