Umhyggja, gleði og kraftur

Kvöldmessa á konudegi 19. febrúar kl. 20

Sunnudagur 19. febrúar Kl. 11 er sunnudagaskóli í höndum Marínar Hrundar, Helgu og Grybos. Biblíusaga, bænir, brúður og söngur.   Kl. 20 er kvöldmessa. Karen Sturlaugsson, bæjarlistamaður Reykjanesbæjar, flytur hugleiðingu. Kórfélagar syngja við undirleik Arnórs organista. Sr. Erla leiðir stundina.

By |2023-02-14T14:12:24+00:0014. febrúar 2023 | 14:12|

5. ferbrúar: Sunnudagaskóli kl. 11 og kvöldmessa kl. 20

Sunnudaginn 5. febrúar kl. 11 er sunnudagaskóli í kirkunni. Marín Hrund, Helga og Grybos leiða stundina í bænum, biblíusögu, í söng og með brúðum. Þennan sunnudag er einnig kvöldmessa kl. 20. Félagar úr Kór Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Arnórs organista. Messuþjónar eru hjónin Halldóra Steina og Helgi Biering. Sr. Erla þjónar.

By |2023-01-31T15:33:01+00:0031. janúar 2023 | 15:33|

Taizésálmar í kvölmessu og sunnudagaskóli 29. janúar

Sunnudagaskólinn verður að vanda í höndum Marínar Hrundar, Helgu og Grybosar sunnudaginn 29. janúar kl. 11. Sunnudagskvöldið 29. janúar kl. 20 er taizémessa í Keflavíkurkirkju. Kórfélagar, undir stjórn Arnórs organista, syngja taizé sálma sem byggist á endurteknu söngstefi er kalla fram hughrif kyrrðar. Linda er messuþjónn og sr. Erla þjónar.

By |2023-01-24T09:15:53+00:0024. janúar 2023 | 09:15|

Sunnudagaskóli og kvöldmessa 15. janúar

Sunnudagur 15. janúar  Sunnudagaskólinn hefst á nýju ári. Komið er saman í Kirkjulundi kl. 11. Marín Hrund, Helga og Grybos leiða samveruna. Söngur, biblíusaga og brúður.   Kvöldmessa kl. 20. Sólmundur Friðriksson leiðir söng við gítarleik. Sr. Erla þjónar

By |2023-01-10T20:09:51+00:0010. janúar 2023 | 20:09|

Hátíðarmessa á nýársdag kl. 14

Nýársdagur kl. 14 - Hátíðarmessa Kór Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Kristjáns Hrannars Pálssonar, organista. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, flytur hátíðarræðu. Messuþjónar eru Elva Björk og Aron Smári. Er. Erla og sr. Fritz þjóna

By |2022-12-29T12:16:25+00:0029. desember 2022 | 12:16|

Breyting á helgihaldi á aðfangadag

Af óviðráðanlegum orsökum fellur aftansöngur á aðfangadag kl. 18 niður Aðfangadagur  Kl.  16   Kraftaverk á Betlehemstræti Regnbogaraddir Keflavíkurkirkju syngja undir stjórn Freydísar Kenifar og við undirleik Alexanders Grybos. Marín Hrund og Helga leiða sunnudagaskólabörn í helgileik og lesa jólaguðspjallið úr barnabiblíunni. Sr. Erla og sr. Fritz Már þjóna Kl.23:30  Nóttin var sú ágæt ein Kóngarnir [...]

By |2022-12-23T10:37:37+00:0023. desember 2022 | 10:37|

Annar sunnudagur í aðventu – Jólaleikrit og aðventukvöld

A öðrum sunnudegi í aðventu kl. 11 býður Keflavíkurkirkja uppá leiksýningu í kirkjunni. Leikhópurinn Lotta kemur með tvær ævintýrapersónur sem hafa dálæti af jólasögum og jólasöngvum. Sunnudagskvöldið kl. 20 eru það Arnór og unga fólkið sem skipa hljómsveit er spilar undir söng hjá Elínu Snæbrá Bergsdóttur, Þorsteini Helga Kristjánssyni, Gígju Eyjólfsdóttur, Júlíusi Frey Guðmundssyni og [...]

By |2022-11-30T10:00:33+00:0030. nóvember 2022 | 10:00|

Ukulelemessa og sunnudagaskóli 20. nóv. kl. 11

Sunnudagurinn 20. nóvember kl. 11. Ukulelemessa þar sem Arnór organisti leiðir söng undir ukulelespili og er. Erla þjónar. Sunnudagaskóli er á sama tíma. Súpa og brauð í Kirkjulundi reitt fram af fermingarfjölskyldum

By |2022-11-20T21:47:21+00:0020. nóvember 2022 | 21:33|

Tvær messur og sunnudagaskóli 6. nóv. kl. 11 og 20

Sunnudagsmorgun 6. nóv. kl. 11 mun Arnór organisti leiða söng undir ukulelespil í lágstemmdri messu sem sr. Erla annast í þjónustu. Marín, Helga og Grybos leiða sunnudagaskólann á sama tíma. Fermingarforeldrar reiða fram súpu og brauð í boði í Kirkjulundi. Sunnudagskvöld 6. nóv kl. 20 er allra heilagra messa haldin hátíðleg. Starfsfólk Heilbrigðisstofnun Suðurnesja tekur þátt [...]

By |2022-11-04T20:32:00+00:004. nóvember 2022 | 20:32|

Söfnun fermingarbarna 2. nóv. kl. 17:30-20

Fermingarbörn í Keflavíkurkirkju munu ganga í hús 2. nóvember kl. 17:30-20:00 og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Þetta er árleg söfnun fermingarbarna Þjóðkirkjunnar. Fyrir söfnunina hafa fermingarbörnin fengið fræðslu um verkefnið, sem snýst um að safna fyrir vatnsbrunnum í Eþíópíu og Úganda. Við hvetjum söfnuðinn til þess að taka vel á móti fermingarbörnum, sem hafa [...]

By |2022-10-31T16:28:49+00:0031. október 2022 | 16:28|
Go to Top