Umhyggja, gleði og kraftur

(Mótor)hjólamessa – Annan í hvítasunnu kl. 20

Annar í hvítasunnu - 29. maí kl. 20 (Mótor)hjólamessa í Keflavíkurkirkju á öðrum í hvítasunnu. Þau sem hyggja á ferðalög í sumar eru sérstaklega velkomin og taka á móti fararblessun fyrir ferðalög sumarsins. Njótum góðrar samveru við ljúfan söng og góð orð. Sr. Fritz Már þjónar.

By |2023-05-23T13:22:44+00:0023. maí 2023 | 13:22|

Uppstigningardagur í Bessastaðakirkju 18.maí kl. 11

Á degi eldri borgara höldum við í heimsókn Bessastaðakirkju þar sem sameiginleg messa safnaðarins í Keflavík og á Álftanesi verður kl. 11. Eldey og Garðálfarnir, kórar eldri borgara á Suðurnesjum og Álftanesi, syngja undir stjórn Arnórs og Ásvaldar, organista. Sr. Hans Guðberg, prófastur, þjónar ásamt Vilborgu djákna, sr. Erlu og sr. Fritz Már. [...]

By |2023-05-19T09:39:44+00:0019. maí 2023 | 09:39|

Dymbilvika og páskahátíð í Keflavíkurkirkju

Skírdagskvöld 6. apríl kl. 20 Fyrir öldum og árþúsundum settust vinir við borð og snæddu saman merkrilegar máltíðar sem við minnumst er við göngum til altaris að kvöldi skírdags undir taisesálmasöng. Við lok messunnar verður altarið afskrýtt og á það lagðar 5 rósir sem tákn um sármerki Krists. Föstudagurinn langi 7. apríl kl. 14 „Guð [...]

By |2023-04-05T09:41:47+00:005. apríl 2023 | 09:41|

Sunnudagaskóli og Sálumessa 2. apríl kl. 11 og 17

Pálmasunnudagur 2. apríl kl. 11 Sunnudagaskóli í höndum Marínar Hrundar, Helgu og Grybos. Þau segja biblíusögu, leiða bæn og söng og brúður koma í heimsókn. Pálmasunnudagur 2. apríl kl. 17 Kórar Grindavíkur- Keflavíkur- og Víðistaðakirkju sameinast í flutning á sálumessu Gabriel Fauré. Stjórnun og hljóðfæraleik annast kantorarnir; Arnór Vilbergsson, Kristján Hrannar Pálsson og Sveinn Arnar [...]

By |2023-03-27T08:50:29+00:0027. mars 2023 | 08:50|

Messa og sunnudagaskóli 19. mars kl. 11

Sunnudagur 19. mars kl. 11  Í messu þessa dags syngja kórfélagar undir stjórn Arnórs organista. Messuþjónar eru Halldóra Steina og Helgi Viðar. Sr. Erla þjónar. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í höndum Marínar, Helgu og Grybos sem bjóða upp á biblíusögu, bænir, brúður og söng. Fermingarforeldrar reiða fram súpu og brauð.

By |2023-03-17T15:40:29+00:0017. mars 2023 | 15:40|

Messa og sunnudagaskóli 5. mars kl. 11

Sunnudagur 5. mars kl. 11  Kórfélagar syngja við orgelleik Arnórs organista. Sr. Erla þjóna og í messuþjónustu eru Jónína og Páll Reykdal. Sunnudagaskóli er á sama tíma í Kirkjulundi í höndum Marínar, Helgu og Grybos. Súpa og brauð í boði í Kirkjulundi

By |2023-02-28T21:37:27+00:0028. febrúar 2023 | 21:37|
Go to Top